Upp­gjörið: Valur - ÍA 6-1 | Valur valtaði yfir Skagann í síðasta leik Vindsins

Ólafur Þór Jónsson skrifar
Birkir Már Sævarsson kvaddi sviðið með stæl.
Birkir Már Sævarsson kvaddi sviðið með stæl. Vísir/Anton Brink

Síðasta umferð Bestu deildarinnar fór fram í dag. Á N1 vellinum á Hlíðarenda tók Valur á móti ÍA þar sem mikið var undir. Valur þurfti sigur til að tryggja þriðja sæti deildarinnar í dag en Skagamenn voru algjörlega pressulausir.

Það mætti hinsvegar bara eitt lið til leiks í dag. Valsarar höfðu tögl og haldir frá upphafsspyrnu og náðu forystunni strax á 6. mínútu þegar Sigurður Egill Lárusson skoraði mark eftir að Albin Skoglund hafði hirt boltann af sofandi varnarmanni ÍA. Sigurður setti boltann af vítateigslínunni og í netið.

Stuttu síðar skoraði Patrik Pedersen annað mark ÍA eftir undirbúning Sigurðar Egils Lárussonar. Skagamenn minnkuðu muninn með marki frá Guðfinni Þór Leóssyni þar sem skot hans utan teigs fór í Jakob Franz og í netið.

Valur setti aftur í gírinn og skoruðu tvö mörk fyrir lok hálfleiksins. Tryggvi Hrafn Haraldsson og Albin Skoglund skoruðu sitthvort markið á máttlausa skagamenn. Staðan í hálfleik 4-1 og ekkert sem virtist koma í veg fyrir öruggan sigur heimamanna.

Valur rak smiðshöggið með tveimur mörkum á tveimur mínútum, 78. og 79. Það voru þeir Gylfi Sigurðsson og Lúkas Logi Heimisson sem gerðu það af öryggi.

Öruggur sigur Vals staðreynd. Valur átti frábæran leik í dag og léku á allsoddi. Sigurinn var mjög sannfærandi og sanngjarn enda stýrðu heimamenn lögum og lofum í leiknum. Niðurstaða Vals þriðja sæti og evrópusæti á næstu leiktíð. Liðið var átján stigum frá toppsætinu og það verður að teljast vonbrigði fyrir lið eins og Val sem ætlaði sér klárlega titilinn.

ÍA var bara komið í frí í dag. Höfðu að engu að keppa og ákefðin eftir því. ÍA endar tímabilið í 5. sæti og geta vel við unað.

Klippa: Óskar Hrafn eftir leik

Atvik leiksins

Á fyrstu mínútunni var strax ljóst hjá hvoru liðinu væri meira í húfi. Valsarar mættu miklu tilbúnari og áræðnari. Meðan var ÍA á hælunum og ljóst að liðið hafði að engu að keppa. Fyrsta markið kemur svo á sjöttu mínútu og Valsarar litu aldrei aftur eftir það.

Stjörnur og skúrkar

Albin Skoglund átti góðan leik í Valstreyjunni. Fór ítrekað illa með vörn ÍA með sprettum sínum og sendingum. Kórónar svo frammistöðuna með marki. Jónatan Ingi Jónsson var með þrjár stoðsendingar í dag og átti góðan leik. Þá var Gylfi Þór öflugur að vanda á miðjunni.

Klippa: Ómar Ingi eftir leik

Það er ekki hægt að taka marga úr þessu Skagaliði í dag sem virtist ekki geta beðið eftir því að komast í frí. Ekkert verður klagað uppá Árna Marínó í markinu hinsvegar, hann bjargaði marki þrisvar í leiknum og kom í veg fyrir algjöra niðurlægingu ÍA.

Dómarinn

Pétur Guðmundsson hafði úr litlu að moða í dag. Litið um stór atriði eða umdeild en allar ákvarðanir voru uppá 10 og stjórnin á leiknum mjög góð.

Stemning og umgjörð

Veðrið lék ekki beint við okkur á Hlíðarenda í dag. Kannski við hæfi að það væri sterkur vindur í síðasta leik Vindsins (Birkis Más). Þar fyrir utan var stemmningin fín, ágætismæting miðað við veður og umgjörð Vals að vanda frábær.

Klippa: Theodór Elmar eftir leik

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira