Madrídingar niður­lægðir á heima­velli í stærsta leik ársins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Börsungar fóru illa með erkifjendur sína í kvöld.
Börsungar fóru illa með erkifjendur sína í kvöld. Pedro Salado/Getty Images

Barcelona vann ótrúlegan 4-0 sigur er liðið heimsótti Real Madrid í stærsta leik ársins í spænska boltanum í kvöld, El Clásico.

Heimamenn í Real Madrid voru sterkari á stórum köflum leiksins, en náðu ekki að skapa sér mikið af opnum marktækifærum. Í þau skipti sem Madrídingar ógnuðu marki gestanna fór flaggið yfirleitt á loft og stórstjörnurnar Kylian Mbappé og Vinicius Junior voru dæmdar rangstæðar.

Eftir markalausan fyrri hálfleik tókst gestunum loks að brjóta ísinn þegar Robert Lewandowski slapp einn í gegn og kláraði vel á 54. mínútu, og tveimur mínútum síðar var Pólverjinn svo búinn að tvöfalda forystu gestanna með góðum skalla.

Ungstirnir Lamine Yamal bætti svo þriðja marki Börsunga með frábærri afgreiðslu á 77. mínútu áður en Raphinha slapp einn í gegn og lyfti boltanum yfir Andriy Lunin í marki Madrídinga skömmu fyrir leikslok.

Niðurstaðan því ótrúlegur 4-0 sigur Barcelona sem trónir á toppi spænsku deildarinnar með 30 stig eftir 11 leiki, sex stigum meira en Real Madrid sem situr í öðru sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira