Um er að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Búið er að samþykkja verkföll í fjórum skólum til viðbótar sem hefjast í nóvember.

Pressan eykst á öllum
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sagði í samtali við fréttastofu að samningaviðræður mjakist áfram í húsi ríkissáttasemjara þrátt fyrir að fundi hafi lokið á sjötta tímanum í dag þar sem ekki var útlit fyrir að komist yrði að neinni niðurstöðu.
„Fundi í dag lauk án árangurs. Það er mikið búið að bera á milli og töluvert sem ber á milli enn þá. Við erum auðvitað á þeim stað að við hefðum viljað að verkefnið hefði gengið hraðar fyrir sig. Við teljum okkur hafa verið mjög skýr í langan tíma. Nú er staðan sú að það eru komnar í gang aðgerðir.“
Hann segir að þegar að aðgerðir sem þessar hefjist í breytist takturinn í kjaraviðræðum.
„Þá eykst pressan á öllum aðilum. Auðvitað á viðsemjendunum en líka á okkur í Kennarasambandinu að þessar aðgerðir sem hefjast í kvöld í níu skólum verði sem allra stystar. Vonandi eykur það fókusinn á því að við förum áfram.“

Það hefur ekki verið boðaður annar samningafundur en vinnufundir munu standa yfir á morgun og hinn hjá Kennarasambandinu. Magnús kveðst enn vera bjartsýnn að samningar náist.
„Verkefni okkar hérna er að við búum til samning þar sem okkar fólk er sambærilegt í launum við sérfræðing á almennum markaði og við fáum samfélagið með okkur í það verkefni sem við höfum verið að benda á að fjárfesting í kennurum skili meiri fagmennsku og stöðugleika í skólanna okkar.“
Lokað á Drafnarsteini á morgun
Í dag mættu börnin á Drafnarsteini í Reykjavík í leikskólann í síðasta sinn í bili. Þegar fréttastofu bar að garði voru krakkarnir að njóta sín úti rigningunni. Þau hoppuðu í polla, léku sér í drullusvaðinu og nutu alls annars sem íslenska haustið hefur upp á að bjóða. Leikskólinn verður lokaður næstu daga.
„Við erum auðvitað að skoða málin frá alls konar sjónarhornum. En eins og staðan er í dag, þá er lokað hér á morgun. það er alveg ljóst,“ segir Halldóra Guðmundsdóttir, leikskólastjóri á Drafnarsteini.

Nú sé brýnt, fyrir kennara, börnin og foreldra þeirra að samningar verði kláraðir.
„Ég skil vel foreldra sem eru í vandræðum. Við erum burðarstólpi samfélagsins. Það hefur oft sannað sig. En við þurfum að laga kjörin,“ segir Halldóra.
Þetta verði dýrmætustu störfin eftir tíu til tuttugu ár
Guðjón Már Guðjónsson, foreldri barns á Drafnarsteini, segist taka einn dag í einu.
„Þetta er auðvitað verðmætt starf að sjá um börnin okkar. Ég hugsa að eftir tíu til tuttugu ár verði þetta verðmætustu störfin, þar sem það verða komnir róbótar í allt hitt,“ segir Guðjón.

Þannig það er mikilvægt að fjárfesta í kennurum, sérstaklega á leikskólum?
„Já, við erum rosalega ánægð með allt það starf sem er á þessum leikskóla. Við getum ekki gert annað sem foreldrar hér en að veita kennurunum stuðning. Líka lítandi í völvuna hvernig framtíðin verður, þá verða þetta dýrmætustu störfin. Að sjá um börnin okkar,“ segir Guðjón.
Sérðu fram á að missa eitthvað úr vinnu næstu vikurnar?
„Við erum bara að ræða þetta núna á heimilinu. Við erum bara að plana einn dag í einu. En já, pottþétt eitthvað,“ segir Guðjón.