Innlent

Brauðtertur til um­ræðu á haust­fundi Lands­virkjunar

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum á fundinum á Selfossi.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum á fundinum á Selfossi. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Brauðtertur með skinkusalati, mútur og brjálaðir verkfræðingar voru meðal annars til umræðu á haustfundi Landsvirkjunar, sem fór fram á Selfossi.

Haustfundurinn, sem haldinn var á Hótel Selfossi í vikunni var mjög fjölsóttur en fjögur fróðleg erindi voru haldin á fundinum, auk þess sem nokkrir gestir mættu í sófaspjall. Fundarstjóri dagsins, Úlfar Linnet byrjaði á því að tala um brauðtertur en fundurinn var í beinu streymi.

„Ég veit að þið hefðuð viljað vera með okkur hér í dag og þess vegna er sérstaklega sárt að þurfa að færa ykkur þær slæmu fregnir að þið munið missa af brauðtertu með skinkusalati, sem verður borin fram hérna á eftir. Nú spyr sjálfsagt einhver af hverju þetta var ekki auglýst en það var vegna þess að Ölfusárbrúin er gömul og hefði ekki ráðið við umferðina,” sagði Úlfar og uppskar mikinn hlátur.

Úlfar Linnet, forstöðumaður Orkumiðlunar hjá Landsvirkjun, sem var fundarstjóri dagsins.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og svo kom fram spurning í sófaspjalli um mútur til Landsvirkjunar í starfi og stuðningi fyrirtækisins til samfélagsins, hvort slíkt væri í gangi eða ekki?

„Já, ég get bara byrjað til að taka allan vafa um það ef að spurning er hvort Landsvirkjun greiði mútur eða beri fé á fólk þá gerum við það ekki. Við erum bara fyrirtæki eins og hvert annað fyrirtæki. Við höfum okkar eiganda og skilum okkar arði til hans,” sagði Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun.

Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun, sem svaraði spurningunni um mútur.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ásbjörg Kristinsdóttir hjá Landsvirkjun sagði frá mörgum spennandi verkefnum hjá fyrirtækinu í dag og næstu árin og nefndi í því sambandi brjálaða verkfræðinga

„Það er sannarlega magnað fyrir okkur brjáluðu verkfræðingana, áhugafólk um framkvæmdir að upplifa þessa tíma,” sagði Ásbjörg meðal annars.

Ásbjörg Kristinsdóttir framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Landsvirkjun, sem nefndi brjáluðu verkfræðingana.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Brauðterturnar slógu heldur betur í gegn hjá fundarmönnum á haustfundinum á Selfossi.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Selfyssingarnir Guðjón Sigfússon og Arna Ýr Gunnarsdóttir, sem sóttu haustfund Landsvirkjunar.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra ávarpaði fundinn og sat fyrir svörum í sófaspjalli.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×