Sport

Fólk gapir vestan­hafs eftir ó­trú­leg til­þrif

Valur Páll Eiríksson skrifar
Barkley hoppar aftur á bak yfir Jarrion Jones, varnarmann Jaguars, sem veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið.
Barkley hoppar aftur á bak yfir Jarrion Jones, varnarmann Jaguars, sem veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Elsa/Getty Images

„Þetta er það besta sem ég hef séð,“ segir Nick Sirianni, þjálfari Philadelphia Eagles, um magnaða takta hlauparans Saquon Barkley í 28-23 sigri Arnanna á Jacksonville Jaguars í NFL-deildinni í amerískum fótbolta í gærkvöld.

Taktar Barkleys hafa farið sem eldur um sinu á samfélags- og fréttamiðlum frá því í gær. Hann sneri þá af sér einn varnarmann og hoppaði svo yfir þann næsta, aftur á bak, áður en hann hélt áfram leið sinni.

„Það munu krakkar í Philadelphiu, og um allt land, reyna þetta næstu daga. Það mun ekki takast. Ég held að hann sé sá eini í heiminum sem er fær um þetta. Ég er orðlaus. Þetta var ótrúlegt,“ sagði Sirianni enn fremur.

Fólk í stúkunni stóð upp og klappaði fyrir Barkley eftir atvikið og aðrir sáust líta hvor á annan í sjokki.

„Þetta var klikkað. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt,“ sagði liðsfélagi Barkleys, útherjinn DeVonta Smith.

Aðspurður um taktana stóð Barkley ekki á svörum. Almættið ætti hrós skilið frekar en hann sjálfur.

„Ég þarf að þakka Guði. Ég ætla ekki að ljúga, ég held að Guð hafi gefið mér hæfileika til að spila þessa stöðu og hafi blessað mig með ákveðinni eðlishvöt. Stundum þarftu að sleppa þér, og leyfa Guði og eðlishvötinni að ráða för,“ sagði Barkley í viðtali eftir leik.

Eagles hafa unnið sex af átta leikjum sínum í deildinni og sitja í öðru sæti í austurriðli NFC hluta deildarinnar, á eftir Washington Commaders sem unnu sinn leik í gær og hafa unnið sjö af níu. Commanders hafa ekki byrjað tímabil svo lengi í háa herrans tíð.

Öll úrslit gærdagsins má sjá að neðan.

  • Úrslit gærkvöldsins í NFL-deildinni:
  • Atlanta Falcons 27-21 Dallas Cowboys
  • Baltimore Ravens 41-10 Denver Broncos
  • Buffalo Bills 30-27 Miami Dolphins
  • Carolina Panthers 23-22 New Orleans Saints
  • Cincinnati Bengals 41-24 Las Vegas Raiders
  • Cleveland Browns 10-27 Los Angeles Chargers
  • New York Giants 22-27 Washington Commanders
  • Tennessee Titans 20-17 New England Patriots
  • Arizona Cardinals 29-9 Chicago Bears
  • Philadelphia Eagles 28-23 Jacksonville Jaguars
  • Green Bay Packers 14-24 Detroit Lions
  • Seattle Seahawks 20-26 Los Angeles Rams
  • Minnesota Vikings 21-13 Indianapolis Colts
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×