Ferðaþjónustufyrirtækið Ice Pic Journeys sætti töluverðri gagnrýni eftir að um tvö hundruð björgunarsveitarmenn héldu lengi áfram að leita að ferðafólki undir ís í Breiðamerkujökli þegar banaslys varð þar í ágúst á grundvelli rangra upplýsinga um hversu margir hefðu verið í ferðinni. Ráðherra ferðamála sagði það meðal annars grafalvarlegt að talning hefði ekki staðist.
Bandarískur ferðamaður lést og ólétt eiginkona hans slasaðist þegar þau urðu undir ís sem hrundi úr vegg svelgs í Breiðamerkurjökli sunnudaginn 25. ágúst. Fólkið var í íshellaferð með Ice Pic Journeys þegar slysið varð.
Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir nú að upplýsingar sem Ice Pic Journeys veitti lögreglu um fjölda þeirra sem voru í ferðinni fljótlega eftir að slysið varð hafi verið réttar. Óvissa leiðsögumanna fyrirtækisins á vettvangi hafi orðið til þess að leitinni var haldið áfram fram á næsta dag.
Töldu sig hafa séð fleiri lenda undir ísnum
Lögregla sagðist á sínum tíma hafa fengið upplýsingar um að 25 manns hefðu verið í ferðinni og fjórir lent undir ísnum. Tveggja var því enn talið saknað eftir að bandaríska parinu var komið undan ísnum og hélt leit því áfram á mánudeginum.
Eftir miðjan dag á mánudeginum gaf lögregla út tilkynningu þar sem kom fram að leit hefði verið hætt eftir að ljóst hefði orðið að enginn væri undir ísnum. Aðeins 23 hefðu verið í ferðinni og þau einu sem slösuðust hefðu verið bandaríska parið.
„Ljóst virðist að skráning í ferðina og utanumhald hafi ekki verið nákvæmt auk misvísandi upplýsinga um fjölda í ferðinni,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar.

Í losti og töldu sig hafa séð fleiri verða undir ísnum
Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn, segir við Vísi að villan hafi legið í misræmi á milli skráningarlistans og þess sem leiðsögumennirnir sögðu lögreglu. Listinn hafi verið réttur og lögregla hafi átt gott samstarf við ferðaþjónustufyrirtækið.
„Þeir voru ekki alveg vissir á því þegar til kom. Þeim fannst eins og einhverjr tveir hefðu lent undir ísnum og voru þá ekki lengur orðnir alveg nógu vissir á fjöldanum sem þeir voru með. Þeim fannst eins og þeir hefðu séð út frá sér fólk verða undir ísnum. Menn eru bara í losti þegar svona gerist og bregður. Þá verður bara eitthvað til þess að þú ert ekki viss og ferð að efast,“ segir Sveinn Kristján.
Rannsóknin á slysinu er nú á lokastigum en Sveinn Kristján segist ekki treysta sér til þess að segja til um hvenær henni verði formlega lokið.
Eins og áður hefur komið fram bendi ekkert til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað.