Handbolti

Sigur­jón hættur með Gróttu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigurjón Friðbjörn Björnsson er hættur með Gróttu.
Sigurjón Friðbjörn Björnsson er hættur með Gróttu. vísir/diego

Sigurjón Friðbjörn Björnsson er hættur þjálfun kvennaliðs Gróttu í handbolta.

Hann tók við Gróttu í febrúar 2023. Undir hans stjórn tryggði liðið sér sæti í Olís-deildinni síðasta vor.

Ekki hefur gengið vel hjá Gróttu það sem af er tímabili. Liðið er á botni Olís-deildarinnar með tvö stig og tapaði með tólf marka mun fyrir ÍR, 30-18, í síðustu viku.

Júlíus Þórir Stefánsson, sem var aðstoðarmaður Sigurjóns, stýrir Gróttu þar til nýr þjálfari finnst.

Næsti leikur Gróttu er gegn FH í Powerade-bikarnum á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×