Viðskipti erlent

Fá ekki að skrá sví­virðingar um Rússa sem vöru­merki

Kjartan Kjartansson skrifar
Kona heldur á poka með niðrandi slagorðinu um rússneska herskipið Moskvu við bakka árinnar Dnjepr í Kænugarði.
Kona heldur á poka með niðrandi slagorðinu um rússneska herskipið Moskvu við bakka árinnar Dnjepr í Kænugarði. Vísir/Getty

Evrópskur dómstóll hafnaði umsókn úkraínska landamæraeftirlitsins um að skrá svívirðingar um rússneskt herskip sem vörumerki í dag. Svívirðingarnar hafa orðið að nokkurs konar þjóðarslagorði í Úkraínu í stríðinu gegn Rússum.

Landamæraeftirlitið sóttist eftir því að skrá setninguna „Rússneskt herskip, troddu því upp í rassgatið á þér“ sem vörumerki. Almenni dómstóll Evrópusambandsins hafnaði kröfunni á þeim forsendum að það væri pólitískt slagorð og snerist hvorki um vöru né þjónustu, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Uppruni slagorðsins er samskipti áhafnar rússneska herskipsins Moskvu við landamæraverði á Snákaeyju í Svartahafi á upphafsdögum stríðsins árið 2022. Skipuðu Rússarnir Úkraínumönnunum að gefast upp eða deyja ella.

„Rússneskt herskip, troddu því upp í rassgatið á þér,“ var svar Úkraínumannanna.

Landamæraverðirnir voru teknir höndum en var síðar sleppt í fangaskiptum. Síðan þá hafa fúkyrði þeirra verið prentuð á boli, kaffibolla, auglýsingaskilti og frímerki í Úkraínu og verið táknræn fyrir baráttu Úkraínumanna gegn innrásinni.

Rússar yfirgáfu Snákaeyju eftir nokkurra mánaða hersetu. Úkraínumenn sökktu herskipinu Moskvu síðar sama ár og orðaskipti áhafnarinnar við hermennina á Snákaeyju áttu sér stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×