Viðskipti erlent

Mega ekki lengur skreyta sig með konung­legum fjöðrum

Atli Ísleifsson skrifar
Þegar Friðrik settist á konungsstól þann 14. janúar síðastliðinn voru 104 dönsk fyrirtæki og fimm erlend fyrirtæki sem voru með stöðu og leyfi til að titla sig sem „konunglegur birgðasali“.
Þegar Friðrik settist á konungsstól þann 14. janúar síðastliðinn voru 104 dönsk fyrirtæki og fimm erlend fyrirtæki sem voru með stöðu og leyfi til að titla sig sem „konunglegur birgðasali“. EPA

Danska konungshöllin hefur gefið út að frá og með árinu 2030 megi dönsk fyrirtæki ekki lengur merkja vörur sínar með kórónu með skilaboðum um að framleiðandinn sé „konunglegur birgðasali“, eða „Kongelig Hofleverandør“.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dönsku konungshöllinni þar sem segir að til standi að láta fyrirtækin losa sig við merkingarnar í fösum fram til ársloka 2029. Ástæðan sé að merkingarnar eigi ekki lengur erindi á þessum tímum.

Meðal fyrirtækja sem falla undir þetta eru Arla, Tuborg, Illums, Kay Bojesen, Anthon Berg, Georg Jensen, Jysk, Magasin du Nord, Michelen, Tuborg og Carlsberg. Sjá má listann í heild sinni á heimasíðu dönsku konungshallarinnar. 

Þegar Friðrik settist á konungsstól þann 14. janúar síðastliðinn voru 104 dönsk fyrirtæki og fimm erlend fyrirtæki sem voru með stöðu og leyfi til að titla sig sem „konunglegur birgðasali“ og hafa í skjóli þessa haft leyfi til að vera með danska kórónu á vörum sínum.

Í yfirlýsingu konungshallarinnar segir að nú séu það afskaplega fá þessara fyrirtækja sem þjónusti eða afhendi konungshöllinni vörur og eigi þetta því ekki lengur við. Konungshöllin muni þó halda áfram að styðja við danskt atvinnulíf, meðal annars með þátttöku í ráðstefnum og annars konar stuðningi á erlendri grund.

Áður hefur verið talsverð umræða í Danmörku þar sem konungshöllin hefur verið hvött til að svipta áfengisframleiðendum slíkum merkingum, þar með talið Carlsberg, Kjær og Sommerfeldt og De Danske Spritfabrikker.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×