Thelma Dís skoraði sex þriggja stiga körfur í 77-73 sigri íslensku stelpnanna í Ólafssalnum.
Thelma varð þar með fyrsta íslenska konan frá því í júlí 2004 sem nær að skora sex þriggja stiga körfur í einum landsleik.
Thelma deilir þar með metinu með Birnu.
Móðir hennar, Björg Hafsteinsdóttir, átti sjálf þriggja stiga metið í 35 ár eða frá 1989 til 2004.
Björg varð fyrsta íslenska konan til að skora þrjá þrista, fjóra þrista og fimm þrista í einum landsleik.
Björg skoraði mest fimm þrista í einum landsleik en því náði hún tvisvar sinnum og jafnaði þar með eigið met einu sinni. Hún hafði áður bætt sitt eigið met um tvo þrista.
Margrét Sturlaugsdóttir varð aftur á móti fyrsta íslenska konan til að skora meira en einn þrist í landsleik. Það gerði hún í leik á móti Mónakó í maí 1989.
Fyrstu þriggja stiga körfu landsliðsins skoraði aftur á móti Björg sjálf í leik á móti Danmörku í apríl 1986.
- Flestar þriggja stiga körfur í A-landsleik kvenna:
- 6 - Thelma Dís Ágústsdóttir á móti Rúmeníu 2024
- 6 - Birna Valgarðsdóttir á móti Andorra 2004
- 5 - Birna Valgarðsdóttir á móti Englandi 2004
- 5 - Birna Valgerður Benónýsdóttir á móti Svíþjóð 2023
- 5 - Björg Hafsteinsdóttir á móti Andorra 1991
- 5 - Björg Hafsteinsdóttir á móti Lúxemborg 1993
- 5 - Helena Sverrisdóttir á móti Hollandi 2008
- 5 - Helena Sverrisdóttir á móti Ungverjalandi 2016
- 5 - Helena Sverrisdóttir á móti Svartfjallalandi 2019
- -
- Þróun metsins
- 2 - Margrét Sturlaugsdóttir 1989
- 3 - Björg Hafsteinsdóttir 1989-1991
- 5 - Björg Hafsteinsdóttir 1991-2004
- 6 - Birna Valgarðsdóttir 2004-2024
- 6 - Thelma Dís Ágústsdóttir og Birna Valgarðsdóttir 2024-