Úrskurðurinn sem var kunngjörður aðilum máls með tölvubréfi í morgun gerir það að verkum að Odee þarf að afhenda Samherja vefsíðu sem hann setti upp í nafni Samherja og birti opinbera afsökun vegna Namibíumálsins á.
Dómari í málinu féllst á allar kröfur Samherja í málinu án þess að eiginleg aðalmeðferð færi fram í því. Hann taldi málsástæður Odees um að um varða listræna tjáningu væri að ræða, ekki myndu halda vatni í aðalmeðferð.
Samherji sé samherji hans í listinni
„List myndar öldur og samherji minn í listinni, Samherji, hefur fengið á sig brotsjó. Áframhaldandi tilraun hans til að magna We're Sorry [herferð Odees] hefur umvafið hann í gagnrýninni sem hann reyndi að þagga niður og varpað enn sterkara kastljósi á brot hans, ekki bara í Namibíu heldur einnig gegn tjáningarfrelsinu og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja. Aðgerðir Samherja gegn mér og list minni er tilraun til þess að þagga niður í röddum sem gagnrýna hann,“ segir í yfirlýsingu Odees vegna málsins.
Þetta sé einn öflugasti eiginleiki listarinnar, hæfni hennar til að ögra valdhöfum, varpa rýrð á kerfið og ýta undir samtal.
Verkið þegar orðið sögulegt
Odee segir að verkið sé þegar orðið sögulegt, ekkert íslensk listaverk hafi orðið andlag dómsmáls af þessu tagi, hvað þá fyrir æðsta dómstigi í öðru landi og höfðað af fyrirtæki sem hafi verið staðið að margvíslegum brotum.
„Færa má rök fyrir því að það sé orðið þekktasta nútímalistaverk Íslands. Úrskurðurinn staðfestir vilja stórfyrirtækis og hræðir þá sem höfðu hugsað sér að gagnrýna Samherja opinberlega. Núna sýnir listaverkið fram á þessa hræðslu og hvernig Samherji notar hana til að ritskoða og þagga niður opinbera gagnrýni.
Lögmaðurinn vann frítt í fimm hundruð tíma
Odee segir að Samherji hafi vonast til þess að hann myndi gefast upp undir gríðarlegum þrýstingi Samherja. Hann hafi ekki verið einn í baráttunni gegn gríðarlega fjársterkum andstæðingi sínum. Hann hefði ekki getað rekið málið ef lögmaður hans Andra Matei og lögmannsstofan Avant-Garde Lawyers hefðu ekki veitt honum fimm hundruð klukkustundir af endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð.

Þau hafi skipt sköpum í málinu og komið því í kring að dómari í málinu veitti honum yfir höfuð áheyrn. Hann ræði nú við lögmenn sína um það hvernig hann geti haldið baráttu sinni áfram að verja rétt sinn til listrænar tjáningar. Hlutverki verksins í að ýta samfélagslegri umræðu upp á yfirborðið sé hvergi nærri lokið.