Fótbolti

Sæ­dís skoraði annan deildarleikinn í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sædís Rún Heiðarsdóttir varð Noregsmeistari á fyrsta tímabili sínu í atvinnumennsku.
Sædís Rún Heiðarsdóttir varð Noregsmeistari á fyrsta tímabili sínu í atvinnumennsku. getty/David Lidstrom

Sædís Rún Heiðarsdóttir skoraði mark meistara Vålerenga í 1-1 jafntefli við Lilleström í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Sædís endaði tímabilið vel en í síðustu tveimur deildarleikjum Vålerenga skoraði hún tvö mörk og lagði upp eitt.

Ólafsvíkingurinn spilaði sextán deildarleiki á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku; skoraði fjögur mörk og gaf sex stoðsendingar.

Ásdís Karen Halldórsdóttir var í byrjunarliði Lilleström sem komst yfir á strax á 5. mínútu en Sædís jafnaði þremur mínútum fyrir leikslok. Lilleström endaði í 4. sæti deildarinnar en fjögur stig voru dregin af liðinu vegna fjárhagsvandræða.

Selma Sól Magnúsdóttir og stöllur hennar í Rosenborg luku tímabilinu á 0-1 sigri á Roa á útivelli. Sigurmarkið kom á sjöundu mínútu í uppbótartíma. Rosenborg endaði í 3. sæti deildarinnar.

Þrjár íslenskar landsliðskonur komu við sögu í leik Bröndby og Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni. Bröndby vann leikinn, 3-0.

Ingibjörg Sigurðardóttir og Hafrún Rakel Halldórsdóttir voru báðar í byrjunarliði Bröndby sem hefur unnið þrjá leiki í röð.

Kaupmannahafnarliðið er í 3. sæti deildarinnar með 24 stig, sex stigum á eftir Fortuna Hjörring og Nordsjælland sem eru í tveimur efstu sætunum.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var í byrjunarliði Nordsjælland sem hefur tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×