Fótbolti

Heimsklassa af­greiðsla hjá Sveindísi um helgina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði frábært mark í bikarleik Wolfsburg um helgina. Markið var líka langþráð fyrir íslenska landsliðsframherjann.
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði frábært mark í bikarleik Wolfsburg um helgina. Markið var líka langþráð fyrir íslenska landsliðsframherjann. Getty/Swen Pförtner/

Sveindís Jane Jónsdóttir endaði 49 daga bið sína eftir marki hjá Wolfsburg með stórglæsilegu marki um helgina.

Sveindís skoraði markið með heimsklassa afgreiðslu og markið var liði hennar líka gríðarlega mikilvægt í bikarsigri. Sveindís breytti leiknum með tveimur mörkum og einni stoðsendingu og sá öðrum fremur til þess að Wolfsburg er komið í átta liða úrslit þýsku bikarkeppninnar.

Sveindís kom inn á sem varamaður á 72. mínútu eftir að hafa misst af Meistaradeildarleiknum í vikunni. Hún kom hungruð inn á völinn og lét til sín taka.

Wolfsburg var þarna 1-0 undir í leiknum og þurfti á hjálp að halda. Liðið jafnaði á 82. mínútu og Sveindís kom þeim síðan yfir þremur mínútum síðar.

Sveindís gerði síðan út um leikinn með því að skora fjórða markið og sitt annað mark í uppbótatíma leiksins.

Í millitíðinni lagði Sveindís síðan upp skallamark fyrir Fennu Kalma eftir frábæra fyrirgjöf frá vinstri.

Fyrra markið sitt skoraði Sveindís með heimsklassa afgreiðslu, fékk boltann fyrir utan teiginn, lék fram hjá einum varnarmanni á laglegan hátt áður en hún þrumaði boltanum upp í þaknetið utarlega úr teignum. Frábær afgreiðsla.

Seinna markið skoraði hún af stuttu færi eftir að hafa verið fyrst að átta sig eftir að markvörður Mainz varði skalla liðsfélaga hennar.

Þetta voru langþráð mörk fyrir okkar konu sem hafði ekki skorað fyrir Wolfsburg síðan hún skoraði eitt markanna í 5-0 sigri á Leipzig 4. október síðastliðinn.

Hún er alls með þrjú mörk í fjórtán leikjum í deild (1), bikar (2) og Evrópukeppnum (0) á þessu tímabili.

Það má sjá mörkin hennar sem og stoðsendinguna hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×