Fótbolti

Atlético skoraði sex

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Argentínumaðurinn fagnar öðru marka sinna og ef vel er að gáð má sjá bjórglas sem pirraður stuðningsmaður heimaliðsins hefur grýtt í átt að framherjanum.
Argentínumaðurinn fagnar öðru marka sinna og ef vel er að gáð má sjá bjórglas sem pirraður stuðningsmaður heimaliðsins hefur grýtt í átt að framherjanum. EPA-EFE/MARTIN DIVISEK

Tveimur af leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er nú lokið. Atlético Madríd vann 6-0 útisigur á Sparta Prag á meðan AC Milan vann 3-2 útisigur á Slovan Bratislava.

Julián Alvarez kom gestunum frá Madríd yfir þegar stundarfjórðungur var liðinn. Marcos Llorente tvöfaldaði forystuna og gestirnir leiddu með tveimur í hálfleik. Alvarez bætti við öðru marki sínu og þriðja marki Atlético á 59. mínútu.

Alexander Sørloth var tekinn af velli í hálfleik.EPA-EFE/MARTIN DIVISEK

Antoine Griezmann kom inn af bekknum í hálfleik og skoraði fjórða mark gestanna þegar tuttugu mínútur lifðu leiks. Varamaðurinn Ángel Correa skoraði svo tvívegis og lauk leiknum með sex marka sigri gestanna.

Atl. Madríd er í 9. sæti níu stig að loknum fimm leikjum. Sparta Prag er í 28. sæti með fjögur stig.

Angel Correa fagnar öðru marka sinna í kvöld.EPA-EFE/MARTIN DIVISEK

Bandaríkjamaðurinn Christian Pulisic kom Mílanómönnum yfir eftir undirbúning enska framherjans Tammy Abraham. Heimamenn jöfnuðu metin undir lok fyrri hálfleiks, Tigran Barseghyan með markið og staðan 1-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Rafael Leão kom gestunum yfir á 68. mínútu og þremur mínútum síðar hafði Abraham tvöfaldað forystuna. Nino Marcelli minnkaði muninn fyrir gestina undir lok leiks áður en Marko Tolic nældi sér í tvö gul spjöld á jafn mörgum mínútum og heimaliðið manni færri þegar flautað var til leiksloka.

Rafael Leão var á skotskónum í kvöld.EPA-EFE/JAKUB GAVLAK

AC Milan er í 10. sæti með níu stig á meðan Bratislava er á botni Meistaradeildarinnar án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×