Innlent

Næst­stærsta gosið hingað til

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Virknin er áfram stöðug.
Virknin er áfram stöðug. Vísir/Vilhelm

Eldgosið sem nú stendur yfir er næststærsta eldgosið hingað til á Sundhnúksgígaröðinni. Gasmengun mælist óholl á gönguleiðum við gosstöðvarnar. Gosið heldur áfram með stöðugri virkni og hraunflæðið frá virka gígnum er nú mest til suðausturs að Fagradalsfjalli.

Vísbendingar eru um að kvika streymi áfram af dýpi inn á söfnunarsvæðið undir Svartsengi en litlar breytingar eru á gosóróa.

Mælingar Veðurstofunnar á útstreymi í gær sýndu að um 64 – 71 kg/s af SO2 streymdu frá eldgosinu. Áfram mætti því gera ráð fyrir gasmengun næstu daga, og það ætti sérstaklega við á gönguleiðum við Fagradalsfjall nálægt gosstöðvunum.

Kvikan orðin 47 milljón rúmmetrar

Niðurstöður úr mælingum Náttúrufræðistofnunar í gær sýndu að hraunbreiðan sem myndast hefur í þessu gosi er orðin 9,1 ferkílómetrar að flatarmáli, og rúmmál hennar um 47 milljón rúmmetrar. Hraunbreiðan er að meðaltali rúmlega 5 metra þykk.

Eldgosið, sem hófst fyrir 9 dögum síðan, er þannig orðið það næststærsta að rúmmáli af þeim eldgosum sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni síðan í desember 2023.

Hraunbreiðan sem myndaðist í eldgosinu sem stóð í um 15 daga, frá 22. ágúst til 5. september, er sú stærsta að rúmmáli eða um 61 milljón m3 . Hraunbreiðan sem myndaðist í eldgosinu frá 29. maí til 22. júní er sú þriðja stærsta eða um 45 milljón m3.

Kort sem sýnir útbreiðslu hraunsins sem hefur myndast í þessu gosi eog staðsetningu virka gígsins eins gossprungunnar (rauð lína) eins og hún var kl. 03:39 í nótt. Einnig eru sýndar þær hraunbreiður sem hafa myndast á svæðinu frá desember 2023 (Fjólubláar þekjur). Kortið er byggt á gögnum úr ICEYE gervitungli.Veðurstofan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×