Fer í pyntingar með eiginkonunni tvo morgna í viku Rakel Sveinsdóttir skrifar 7. desember 2024 10:03 Flesta morgna byrjar Hjálmar Sigurþórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs TM, á því að vekja eiginkonuna, gefa henni kaffi og klæða sig síðan í hjólaspandex gallann. Nema tvo morgna í viku; þá er vaknað snemma og þau hjónin mæta í pyntingar hjá þjálfara í Laugum. Vísir/Vilhelm Hjálmar Sigurþórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaþónustu TM, byrjar daginn á því að vekja konuna og gefa henni kaffi. Allan ársins hring hjólar Hjálmar í vinnuna.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Þriðjudaga og fimmtudaga vöknum við hjónin kl. 6:15 til að mæta í pyntingar hjá Hilmari Þór þjálfara í Laugum en hina dagana vakna ég klukkan sjö.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? Vek eiginkonuna og gef henni kaffi og því næst klæði mig í hjólaspandex gallann og allt tilheyrandi þar sem ég hjóla alla daga, allan ársins hring, í og úr vinnu.“ Hvað myndi fjölskyldan gefa þér í einkunn sem handlaginn heimilisfaðir? „Alveg 10 af 10 mögulegum, ég er með svokallað staðbundið sveinspróf í smíðum, húsamálun og rafvirkjun. Hef virkilega gaman af því að sinna svona verkum þar sem reynir á útsjónarsemi og fínvinnu.“ Hjálmar vinnur mikið eftir „to do“ listum sem hann gerir í upphafi vikunnar og sú aðferð sem hefur reynst honum vel er að leyfa sumum verkefnum að flæða á milli vikna en láta reminder bögga sig með þau verkefni sem eru á oddinum, alveg þar til þau klárast. Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég er staddur núna á háanna tíma í vinnunni þar sem við erum að sinna árlegri endurnýjun flestra viðskiptavina, samhliða því að gera samninga við erlenda endurtryggjendur TM sem einnig endurnýjast um áramót. Ég er því til frekar lítils gagns að jafnaði í jólaundirbúningi heima fyrir. En önnur verkefni eru svo að sinna barnabörnunum tveimur sem eru eins árs og fjögurra ára, það er alveg meiri háttar gaman og svo er ég „die hard“ stuðningsmaður ÍR í körfubolta og legg allt sem ég get að mörkum þar í baráttunni sem við erum í um þessar mundir. Körfuboltabakterían sem ég fékk ungur í uppvextinum í Stykkishólmi er alveg hreint ódrepandi.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Að stórum hluta ræða ég ekki mikið um hvað dagurinn ber í skauti sér þar sem viðskiptavinir eru alltaf í fyrsta sæti og hafa forgang um þjónustu og tíma. En ég vinn mikið eftir „to do“ listum sem ég er gjarnan með tilbúna í upphafi viku og reyni eins og ég get að komast í gegnum en stundum þarf að láta eitthvað flæða á milli vikna, en þessi aðferð hefur reynst mér gríðarlega vel. Læt svo reminder bögga mig þar til ég er búinn klára þau mál sem eru á oddinum.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Alltaf á milli klukkan tíu og ellefu, helst ekki seinna, það er góð uppskrift að ná sjö til átta klukkustundir í svefn, plús að hjóla í vinnuna, þá mætir maður kátur og hress alla daga.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Saga Sig ljósmyndari, listakona og fjölskyldukona segir hápunkt morgunsins vera rómantíski kaffibíltúrinn með kærastanum. Saga ætlar að nýta kosningadaginn til að vera með vintage fatasölu í Iðnó en almennt segir hún engan dag hjá sér vera eins. 30. nóvember 2024 10:02 Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Kristján Már Atlason, forstjóri Kletts sölu- og þjónustu ehf., saknar þess stundum að geta ekki sofið almennilega út. Því með aldrinum færist hann sífellt nær því að vera A-týpa sem þarf ekki einu sinni að stilla klukkuna. 23. nóvember 2024 10:01 „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, segist eins og versti unglingur á morgnana enda snúsi hún klukkuna þar til allir aðrir á heimilinu eru komnir fram úr. 16. nóvember 2024 10:06 Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Þegar Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er búinn að hugleiða á morgnana, eldar hann ómótstæðilegan hafragraut fyrir sig og frúna. Moli drífur forstjórann út kvölds og morgna. Hvernig sem viðrar. 9. nóvember 2024 10:01 „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Gerður Huld Arinbjarnardóttir er þessi rólega B-týpa sem tekur sér tíma til að vakna á morgnana. Öfugt við kærastann. Kvöldin eru hennar tími. Enda eitthvað heillandi við nóttina og fyrir svefninn á hún sér algjörlega heilaga kvöldrútínu. 2. nóvember 2024 10:01 Mest lesið Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Viðskipti erlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Það besta og skrýtnasta í dýrasta auglýsingaplássi veraldar Viðskipti innlent Björn Brynjúlfur selur Moodup Viðskipti innlent Keypti hjónin út og á Extraloppuna nú ein Viðskipti innlent Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Viðskipti erlent Katrín Ýr frá JBT Marel til Heilsu Viðskipti innlent Að hringja sig inn veik á mánudögum Atvinnulíf Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Viðskipti innlent Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Að hringja sig inn veik á mánudögum Fermingarmyndin ekki til útflutnings Rauðu flöggin: Þú vilt ekki vinna fyrir svona stjórnanda Úrelt kerfi: „Jafnvel vitað fyrirfram að ráðningin verði kærð“ „Þau samtöl eru oft mjög erfið og jafnvel særandi fyrir umsækjanda“ „Í eitt skipti hringdum við í fréttaskot DV því fyrir það fengum við pening!“ Prakkarastrik loks opinberað: „Það leiðréttist hér með!“ „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ Það sem fáir fíla: Að þú setjir þig á of háan hest „Fullt af íslenskum fyrirtækjum í miklum vandræðum með þetta“ Forstjórinn sem saumar þjóðbúninginn öll mánudagskvöld Andlega uppsögnin: „Þetta er ekki sonur minn sko…“ „Eins og stundum vanti hvatann hjá stofnunum til þess að vilja hagræða“ „Svarið er einfaldlega: Svona höfum við alltaf gert þetta“ „Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan „Ætla ekki að ljúga því að ég sé einhver ofurhress morguntýpa“ „Þú vinnur eftir hentugleika á þeim staðsetningum sem henta“ „Helst eldri stjórnendur sem vilja fá fólkið til baka“ „Oft velur maður frekar það sem maður er góður í“ Verkefnin í fyrra: Stelpupabbar, forðunarhegðun, mismunun og áherslan á jákvæðnina „Hef einstaklega gaman af þessari stanslausu niðurlægingu“ Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Sjálfstætt starfandi fjölgar: „Hvað gerist þegar forstjórinn veikist?“ Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ „Þá hugsuðu menn: Fínt, fáum konurnar í þessi störf“ Sjá meira
„Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Saga Sig ljósmyndari, listakona og fjölskyldukona segir hápunkt morgunsins vera rómantíski kaffibíltúrinn með kærastanum. Saga ætlar að nýta kosningadaginn til að vera með vintage fatasölu í Iðnó en almennt segir hún engan dag hjá sér vera eins. 30. nóvember 2024 10:02
Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Kristján Már Atlason, forstjóri Kletts sölu- og þjónustu ehf., saknar þess stundum að geta ekki sofið almennilega út. Því með aldrinum færist hann sífellt nær því að vera A-týpa sem þarf ekki einu sinni að stilla klukkuna. 23. nóvember 2024 10:01
„Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, segist eins og versti unglingur á morgnana enda snúsi hún klukkuna þar til allir aðrir á heimilinu eru komnir fram úr. 16. nóvember 2024 10:06
Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Þegar Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, er búinn að hugleiða á morgnana, eldar hann ómótstæðilegan hafragraut fyrir sig og frúna. Moli drífur forstjórann út kvölds og morgna. Hvernig sem viðrar. 9. nóvember 2024 10:01
„Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Gerður Huld Arinbjarnardóttir er þessi rólega B-týpa sem tekur sér tíma til að vakna á morgnana. Öfugt við kærastann. Kvöldin eru hennar tími. Enda eitthvað heillandi við nóttina og fyrir svefninn á hún sér algjörlega heilaga kvöldrútínu. 2. nóvember 2024 10:01