Erlent

Macron kynnir nýjan for­sætis­ráð­herra

Samúel Karl Ólason skrifar
Francois Bayrou leiðtogi MoDem, er nýr forsætisráðherra Frakklands.
Francois Bayrou leiðtogi MoDem, er nýr forsætisráðherra Frakklands. AP/Francois Mori

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur opinberað nýjan forsætisráðherra. Sá er Francois Bayrou og er leiðtogi hins miðjusinna flokks MoDem.

Bayrou er 73 ára gamall og hefur tekið þátt í stjórnmálum Frakklands í áratugi. Samkvæmt France24 er mikil reynsla hans talin mikilvæg í því að ná stöðugleika á þinginu þar sem enginn flokkur eða flokkabandalag er með meirihluta.

Síðasta ríkisstjórn Frakklands féll þann 4. desember þegar vantrauststillaga gegn ríkisstjórninni var samþykkt á þingi.

Þá tóku vinstri og hægri flokkar tóku höndum saman gegn Barnier eftir að hann þvingaði óvinsælt fjárlagafrumvarp gegnum þingið án atkvæðagreiðslu þar.

Sjá einnig: Franska ríkisstjórnin fallin

Fyrsta og mikilvægasta verk Bayrou verður væntanlega að semja nýtt fjárlagafrumvarp, í samvinnu með leiðtogum helstu flokka á þingi.

Le Monde segir leiðtoga LFI-flokksins svokallaða hafa þegar tilkynnt að lögð verði fram vantrauststillaga gegn Bayrou. Mathilde Panot segir nauðsynlegt að koma Macron frá völdum, annars haldi haldi óreiðan áfram.

Í fréttum miðilsins kemur einnig fram að Bayrou eigi ærið verk fyrir höndum. Hann þurfi að mynda bandalög við aðra flokka til að halda völdum og halda þinginu starfhæfu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×