Ísland situr nú í 14. sæti á listanum yfir bestu landslið heims eftir að hafa náð sínu besta sæti á síðasta lista með því að vera í 13. sætinu.
Á meðan að margar sterkar Evrópuþjóðir hafa á síðustu mánuðum verið að spila í umspili um að komast á EM í Sviss næsta sumar, þá tryggði Ísland sér farseðilinn þangað með 3-0 sigri gegn Þýskalandi í júlí.
Frá því að síðasti listi var gefinn út hefur Ísland því aðeins spilað vináttulandsleiki. Tveir þeirra voru við Bandaríkin vestanhafs í október og töpuðust báðir, 3-1. Bandaríkin eru efst á heimslista og fara því inn í árið 2025 sem besta landslið heims.
Ísland lék svo tvo leiki á Spáni fyrir hálfum mánuði og gerði þá markalaust jafntefli við Kanada en tapaði 2-0 fyrir Danmörku. Kanada og Danmörk eru einnig fyrir ofan Ísland en Kanada er í 6. sæti og Danmörk áfram í 12. sæti, rétt fyrir ofan Ísland.
Ítalía náði hins vegar að stinga sér upp fyrir Ísland, með því meðal annars að vinna Þýskaland 2-1 í vináttulandsleik og gera 1-1 jafntefli við heimsmeistara Spánar.
Næstu leikir Íslands eru í Þjóðadeildinni í febrúar en Ísland er í riðli með Sviss, Frakklandi og Noregi, í A-deildinni. Frakkland er í 11. sæti heimslistans, eftir að hafa misst Holland upp fyrir sig, en Noregur er í 16. sæti og Sviss í 23. sæti. Ef aðeins er horft til Evrópuþjóða er Frakkland í 6. sæti listans, Ísland í 9. sæti, Noregur í 10. sæti og Sviss í 14. sæti.
Áður en að næstu leikjum kemur þá bíða stelpurnar okkar eftir því að fá að vita á mánudaginn hverjir mótherjar liðsins verða á EM í Sviss, en dregið verður á mánudaginn.
Sjá nánar: Heimslisti FIFA