Innlent

„Ekki skipulagsslys heldur skemmdar­verk“

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sigmundur Davíð segir vöruhúsið við stofugluggann afleiðingu stefnu borgarinnar en ekki frávik henni frá.
Sigmundur Davíð segir vöruhúsið við stofugluggann afleiðingu stefnu borgarinnar en ekki frávik henni frá. Vísir/Samsett

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir stærðar vöruhús sem reist var í Breiðholti steinsnar frá stofugluggum íbúa í fjölbýlishúsi ekki vera skipulagsslys heldur skemmdarverk.

Í aðsendri grein á Vísi segir Sigmundur borgina vera orðna háða sölu byggingarréttar vegna „linnulauss hallareksturs“ sem sé ástæðan fyrir því að borgin hafi hafnað umsókn byggjenda vöruhússins um að draga úr umfangi þess.

„Loks er þetta afleiðing af virðingarleysi borgaryfirvalda gagnvart íbúunum. Í Reykjavík samtímans eru þeir til fyrir borgina, ekki öfugt,“ skrifar Sigmundur.

Fólk í bílastæðalausum íbúðum þvingað í Borgarlínu

Hann segir þéttingarstefnu borgarinnar ganga út á það að grafa út heilar lóðir og byggja út að lóðamörkum sem valdi því að byggðin verði einn stór klumpur.

„Eftir að þéttingarstefnan færðist í aukana hefur verið byggt fyrir útsýni fólks um alla borg á svæðum sem áttu að vera græn en ekki byggingarreitir. Byggt er þétt upp að umferðargötum (eða flugvelli) þ.a. gluggar megi jafnvel ekki vera með opnanleg fög. Bílastæðum er haldið í lágmarki og eiga helst engin að vera svo þvinga megi fólk í hinum dýru bílastæðalausu íbúðum upp í Borgarlínu,“ skrifar Sigmundur.

Litið fram hjá áhyggjum íbúa

Sigmundur er afrdáttarlaus og segir þetta allt gert án tengingar við raunveruleikann og raunar án tengingar við mannlegt eðli.

„Afleiðingarnar birtast loks ljóslega í framkvæmdum eins og þeim sem hafa verið til umfjöllunar undanfarna daga. Litið er fram hjá áhyggjum íbúa og ekki brugðist við fyrr en skaðinn er skeður. Þegar raunveruleikinn blasir við skilja þeir sem skipulögðu allt saman ekki neitt í neinu og tala um „fíaskó” sem þurfi einhvern veginn að bregðast við. Þó líklega ekki með breyttri stefnu,“ skrifar Sigmundur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×