Mæðgurnar hafa nóg að gera í eldhúsinu á Sléttuvegi 1 við kertagerðina og framleiðslu þeirra. Sú yngri er mjög áhugasöm að hjálpa mömmu sinni en þær bræða vaxið á réttu hitastigi í potti inn í eldhúsi þar sem kertin verða til og svo er farið með þau í bollum á stofuborðið þar sem þeim er stillt upp fyrir áhugasama kaupendur en kertin heita Daley kerti. Svo eru kertin skreytt allskonar með kertavaxi.
“Við erum að gera svona falleg einstök kerti því við eru með allskonar öðruvísi kerti, ekki eins og þú finnur út í búð. Við þeytum kertin hérna, þeytum þau þar til þau eru komin í rétt hitastig og þetta eru allt form, sem við erum að setja vaxið í,” segir Þórunn Lilja Hilmarsdóttir, kertagerðakona á Selfossi.

Og jólatrjáakertin eru alltaf vinsæl, sérstaklega þessi bleiku því mæðgurnar elska bleikt og svo eru þær að gera kertablómvendi svo eitthvað sé nefnt.
„Við erum mjög ánægðar með þessi kerti hjá okkur, mjög ánægðar enda höfum ekki undan að gera kerti, það er bara svolítið þannig, við erum bara á milljón alla daga alltaf. Svo er það góða við kertin að þau eru eiturefnalaus þannig að þau ósa á heimilinu hjá fólki,” segir Þórunn Lilja.
En hvað er nú skemmtilegast við kertagerðina?
„Samveran með dótturinni, það er númer 1, 2 og 3, að við séum að gera þetta saman.”

„Ég er að hjálpa mömmu ef eitthvað dettur og setja vax í. Mér finnst öll kertin mjög flott,“ segir Helena Daley Tómasdóttir, 6 ára kertagerðstelpa á Selfossi.
