Fótbolti

Í jóla­frí eftir tap gegn toppliðinu

Sindri Sverrisson skrifar
Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem varamaður gegn Juventus í dag.
Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem varamaður gegn Juventus í dag. Getty/Paolo Giuliani

Alexandra Jóhannsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir stimpluðu sig út í jólafrí í dag, önnur á Ítalíu og hin á Englandi.

Alexandra kom inn á sem varamaður hjá Fiorentina sem mætti toppliði Juventus á heimavelli, og varð að sætta sig við 2-0 tap.

Sofia Cantore skoraði bæði mörk Juventus í upphafi seinni hálfleiks, skömmu áður en Alexandra kom inn á völlinn á 57. mínútu.

Sigurinn veitir Juventus gott forskot á toppi deildarinnar um jólin en liðið er með 35 stig, sjö stigum á undan Inter og Roma, og níu stigum á undan Fiorentina sem er í 4. sæti. Cecilía Rán Rúnarsdóttir hélt marki Inter hreinu í 3-0 sigri gegn Sassuolo fyrr í dag eins og fyrr var greint frá.

Dagný Brynjarsdóttir fékk lítið að spila með West Ham í lokaleiknum fyrir jólafrí í dag, þegar liðið tapaði 3-1 í Birmingham gegn Aston Villa.

Dagný kom inn á völlinn í uppbótartíma, þegar öll mörk leiksins höfðu verið skoruð.

Tapið var slæmt fyrir West Ham sem nú er komið niður í 10. sæti, með átta stig, en Villa, Liverpool og Everton eru einu stigi ofar. Crystal Palace er á botninum með fimm stig og Leicester með sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×