Lífið samstarf

Finndu hina full­komnu gjöf fyrir hana með vöruleit Já.is

Já.is
Yfir áttahundruð innlendar vefverslanir er að finna í Vöruleit Já.is og yfir tvær milljónir vara. 
Yfir áttahundruð innlendar vefverslanir er að finna í Vöruleit Já.is og yfir tvær milljónir vara. 

Vöruleitin Já.is er stórsniðug leitarvél til að finna hina fullkomnu gjöf. Yfir tvær milljónir vara eru inni í Vöruleitinni en hér er búið að taka saman aðgengilegan lista.  

„Það getur verið krefjandi verkefni að finna rétta gjöf fyrir maka sinn og þá er gott að fá innblástur og hugmyndir að gjöfum, hvar þær fást og geta gert verðsamanburð og óskalista. Allt þetta er hægt með Vöruleit Já.is og hefur reynst mjög mörgum afar vel,” segir Edda Ólafsdóttir hjá Já.is.

Edda Ólafsdóttir hjá Já.is notar Vöruleit Já til að finna jólagjafir og hefur sett saman hugmyndalista fyrir okkur hin.

Um áttahundruð innlendar vefverslanir eru inni í leitinni og í kringum tvær milljónir vara en Edda hefur auðveldað okkur lífið með því að taka saman: 

„Ég er mjög skipulögð og elska að nota Vöruleitina til að hjálpa mér til þess, við sjáum það líka á aukningu leita á þessum tíma að ég er alls ekki ein um það. Þetta er auðvitað minn listi en þar eru allskonar fjölbreyttar hugmyndir og verð og gefur vonandi einhverjum sem á eftir að finna gjöfina hugmynd," segir Edda.   

Topp 10 af 100

Hér fyrir neðan má finna tíu gjafir af hundrað hugmyndalistanum fyrir hana, sem færu virkilega vel undir trénu.

Zaseline pels

Gullfallegur pels frá Saint Tropez, sjúklega mjúkur og klæðilegur úr poly-efni og virkilega fallegur yfir kjóla eða við gallabuxur.


Gjóla lúffur

Lúffur úr lambaskinni með loðkanti úr refa- eða þvottabjarnarskinni frá Feldi. Allir vettlingarnir eru handgerðir og fást í mismunandi litum.


Poc Devour útivistarglerlaugu

Poc Devour eru alhliða útivistargleraugu frá Eyesland og henta sérstaklega vel fyrir fjallahjólreiðar, hjólreiðar, jöklaferðir og fjallgöngur. Gleraugun eru breið og hylja vel og vernda augnsvæðið fyrir sól og vindi.


Kono ferðataska 

Kono Beige ferðataska kemur sér virkilega vel fyrir ferðalögin framundan. Þessi er í heppilegri stærð, 61 lítrar og 65 x 42 x 26 sm.


Dúnmjúkt satín koddaver frá Beautybar

Beautybar satín koddaver  sér til þess að hárið verði ekki matt og flækt á meðan þú sefur. Krullur, liðir, blásturinn og lagningin endast lengur á satín koddaveri. Stærð er 50x70cm


Apple MacBook fartölva

MacBook Air er byggð í kringum öfluga M2 örgjörvann sem er með enn meiri krafti í litlum pakka. Vinnuplássið og myndgæðin gera þig agndofa.


Balmain Classic úr

Gullfallegt dömuúr frá Balmain úr gylltu stáli með demöntum og safírgleri. Virkilega falleg gjöf handa þinni bestu.


Ganni Oversized dúnjakki 

Geggjaður dúnjakki frá Ganni, fylltur með 80% endurnýttum dún og 20% fiðri. Jakkinn er með háum kraga og stórri hettu og hægt að draga hann saman í mittinu.


Hringur frá Sif Jakobs

Fallegur gylltur hringur frá Sif Jakobs með hvítum zirkonia steinum. Veglegur og glæsilegur hringur úr línunni Belluno Duo. Sif Jakobs skartgripirnir hafa hlotið mörg alþjóðleg hönnunar verðlaun.


Syðri Reykir frá Farmers Market

Mjúk og létt mohair-silkipeysa frá Farmers Market.  peysan er prjónuð úr 67% mohair, 29% silki, 4% glitgarni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.