Viðskipti innlent

Fyrr­verandi þing­menn vilja verða for­stjórar Kríu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Ætli Jódís eða Gísli Rafn verði forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu? Eða einhver annar?
Ætli Jódís eða Gísli Rafn verði forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu? Eða einhver annar? Vísir/Vilhelm

Staða forstjóra Nýsköpunarsjóðsins Kríu var auglýst nýverið og 39 sóttu um starfið, en fimmtán drógu umsókn sína til baka.

Á meðal þeirra sem sækja um eru tveir þingmenn sem falla af þingi eftir nýafstaðnar kosningar. Það eru Gísli Rafn Ólafsson hjá Pírötum og Jódís Skúladóttir hjá Vinstri grænum.

Greint er frá þessu á vef stjórnarráðsins Þar kemur fram að umsóknarfrestur hafi verið til 2. desember síðastliðins.

Umsækjendur eru:

  • Aron Heiðar Steinsson, verkstjóri
  • Axel Freyr Gíslason, sölumaður
  • Daníel Ólafsson, sérfræðingur í markaðssetningu á netinu
  • Einar Torfi Einarsson Reynis, gagnasérfræðingur
  • Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri
  • Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, framkvæmdastjóri
  • Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður
  • Grímur Sigurðarson, lögmaður
  • Gunnar Halldórsson, rekstrarstjóri
  • Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri
  • Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Íris Dögg Jónsdóttir, verkefnastjóri
  • Jódís Skúladóttir, þingmaður
  • Jón Bragi Gíslason, lögfræðingur og frumkvöðull
  • Jón Steingrímsson, sjálfstætt starfandi
  • Kristín Hrefna Halldórsdóttir, forstöðumaður
  • Ladislav Mach, vaktstjóri
  • Rakel Þóra Sverrisdóttir, lögfræðingur
  • Rohit Goswami, hugbúnaðarverkfræðingur
  • Sæmundur K Finnbogason, sjóðsstjóri
  • Salóme Guðmundsdóttir, sölu og markaðsstjóri
  • Stefán Þór Helgason, þjónustu og viðskiptaþróunarstjóri
  • Þóra Björk Elvarsdóttir, fulltrúi fjárhagsdeildar
  • Þorleifur Jónsson, fasteignasali

Í tilkynningu stjórnarráðsins er Nýsköpunarsjóðnum Kríu lýst með eftirfarandi hætti:

„Nýsköpunarsjóðnum Kríu er ætlað að veita stuðning við nýsköpun í formi fjárfestinga og mun sjóðurinn geta beitt fjölbreyttum aðferðum við fjárfestingu í samræmi við stöðu fjármögnunarumhverfis og stefnu stjórnvalda hverju sinni. Sjóðnum er ætlað að ná til sprota- og nýsköpunarfyrirtækja, vísisjóða og annarra aðila, svo sem þeirra sem vinna að nýskapandi lausnum við samfélagslegum áskorunum, sjálfbærni og grænum umskiptum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×