Erlent

Hæsti­réttur stað­festir dóm yfir Sar­kozy

Atli Ísleifsson skrifar
Hinn 69 ára Nicolas Sarkozy er fyrsti fyrrverandi forseti Frakklands til að fá fangelsisdóm.
Hinn 69 ára Nicolas Sarkozy er fyrsti fyrrverandi forseti Frakklands til að fá fangelsisdóm. Getty

Hæstiréttur Frakklands staðfesti í dag þriggja ára fangelsisdóm fyrir forsetanum fyrrverandi, Nicolas Sarkozy. Tvö ár skulu vera skilorðsbundin en hann mun geta afplánað það þriðja með því að bera ökklaband.

Dómstóll dæmdi Sarkozy í þriggja ára fangelsi árið 2021, þar af tvö ár skilorðsbundin, fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á dómara í öðru spillingarmáli árið 2014. Var Sarkozy sakfelldur fyrir að hafa lofað dómaranum virt embætti gegn því að fá gögn afhent. 

Honum var sömuleiðis meinað að gegna opinberu embætti í þrjú ár.

Patrice Spinosi, lögmaður Sarkozy, segir nú að forsetinn fyrrverandi ætli sér að fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg. Hann muni þó hefja afplánunina með ökklaband þar til að málið verður tekið þar fyrir.

Hinn 69 ára Sarkozy, sem gegndi embætti forseta á árunum 2007 til 2012, er fyrsti fyrrverandi forseti Frakklands til að fá fangelsisdóm.


Tengdar fréttir

Sar­kozy tapar á­frýjun en sleppur við að sitja inni

Nicolas Sarkozy, fyrrverandi Frakklandsforseti, hefur tapað áfrýjun í spillingarmáli sínu. Dómstóllinn hefur þó úrskurðað að hann muni ekki þurfa að afplána fangelsisdóm heldur nægir fyrir hann að afplána heima hjá sér og vera með ökklaband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×