Fullt hús stiga hjá Chelsea og Marc Guiu marka­hæstur

Marc Guiu skoraði þrjú mörk í kvöld og er markahæstur í Sambandsdeildinni.
Marc Guiu skoraði þrjú mörk í kvöld og er markahæstur í Sambandsdeildinni. Richard Heathcote/Getty Images

Chelsea vann öruggan 5-1 sigur gegn Shamrock Rovers í lokaumferð Sambandsdeildarinnar. Þetta var sjötti sigur Chelsea í jafnmörgum leikjum. Shamrock Rovers munu fara í umspil um sæti í sextán liða úrslitum. 

Marc Guiu braut ísinn á 22. mínútu fyrir Chelsea. Markus Poom jafnaði nokkuð óvænt fyrir gestina nokkrum mínútum síðar, en eftir það sáu þeir aldrei til sólar.

Marc Guiu bætti öðru marki við á 34. mínútu. Kiernan Dewsbury-Hall var svo á ferðinni á fertugustu mínútu áður en Marc Guiu fullkomnaði þrennuna, rétt áður en hálfleiksflautið gall.

Þetta var sjötta mark hans í jafnmörgum leikjum í Sambandsdeildinni og hann stóð upp sem sá markahæsti eftir deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Chelsea átti eftir að láta af sér kveða einu sinni í viðbót. Marc Cucurella skoraði fimmta markið fyrir þá á 58. mínútu og geirnegldi öruggan sigur heimamanna.

Chelsea endaði í efsta sæti Sambandsdeildarinnar með fullt hús stiga úr sex leikjum. Andstæðingur þeirra í sextán liða úrslitum mun ekki liggja fyrir fyrr en í febrúar þegar umspilseinvígin klárast.

Shamrock Rovers endaði í tíunda sæti þrátt fyrir tapið og mun mæta annað hvort Molde eða TSC í umspili upp á að komast í sextán liða úrslit.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira