Körfubolti

Frið­rik um við­skilnaðinn við Kefla­vík: „Á­kvað að standa með sjálfum mér“

Aron Guðmundsson skrifar
Friðrik Ingi Rúnarsson á hliðarlínunni sem þjálfari Keflavíkur. Hann er nú tekinn við þjálfun karlaliðs Hauka
Friðrik Ingi Rúnarsson á hliðarlínunni sem þjálfari Keflavíkur. Hann er nú tekinn við þjálfun karlaliðs Hauka Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Friðrik Ingi Rúnars­son hefur verið ráðinn þjálfari karla­liðs Hauka í körfu­bolta. Friðrik tekur við starfinu innan við mánuði eftir að hafa sagt upp störfum hjá kvenna­liði Kefla­víkur. Hann segir ákveðna hluti þar hafa verið í þannig far­vegi að honum fannst skyn­sam­legast að óska eftir því að verða leystur undan störfum.

Hann tekur nú við botn­liði Bónus deildar karla og er að­dragandi þess að Friðrik er ráðinn þjálfari Hauka ekki langur.

„Eins og hefur komið fram þá sagði ég starfi mínu lausu um miðjan desember hjá Kefla­vík. Svo fljót­lega í kjölfarið á því höfðu Haukarnir sam­band við mig og ég lagðist undir feld og var í ágætis sam­skiptum við þá á meðan, kíkti á æfingar. Eitt leiddi af öðru og mér lýst bara mjög vel á þetta verk­efni. Fannst margt spennandi við það,“ segir Friðrik Ingi í sam­tali við íþrótta­deild.

Haukar eru sem stendur á botni Bónus deildarinnar þegar að deildar­keppnin er hálfnuð en Friðrik Ingi sér mögu­leika í stöðunni hjá liðinu sem vann sína fyrstu tvo leiki í deildinni í síðasta mánuði. Haukar heimsækja Hött á Egils­staði í kvöld.

„Þarna er mikið af ungum og efni­legum leik­mönnum. Ís­lenski hópurinn er tals­vert ungur og ung­linga­flokkur félagsins með betri liðum, ef ekki besta lið landsins. Þarna eru leik­menn sem eru, margir hverjir, mjög spennandi. Ég tók líka eftir því þegar að ég kom, Emil Barja hafði gert mjög vel, að það var kominn fínn andi í hópinn. Ég fann að leik­menn voru auðmjúkir og höfðu meira gaman af þessu.

Svo er það þessi áskorun, að fá að hlutast aðeins til. Ég geri mér alveg grein fyrir því að við svona aðstæður þarf að stíga var­lega til jarðar en ég vona svo sannar­lega að ég geti hjálpað, bæði liðinu og leik­mönnum þess, að verða betri. Það verður mark­mið nú­mer eitt, tvö og þrjú að vinna hægt og ró­lega í ákveðnum hlutum og svo sjáum við hvað gerist. Áskorunin er skemmti­leg. Klár­lega.“

Finnst þér það raun­hæfur mögu­leiki að bjarga liðinu frá falli?

„Já það er mögu­leiki. Það eru ellefu leikir eftir og fjögur stig í næstu lið fyrir ofan okkur. Vissu­lega erum við neðsta liðið og þurfum að koma tveimur liðum fyrir aftan okkur. Það er krefjandi en ansi verðugt en við verðum auðvitað að hafa ákveðna von í þessu öllu saman. Ég held að liðið hafi sýnt það núna í desember að það náði að spila ágætis bolta og náði meðal annars í tvo sigra. Sigurinn gegn ÍR var mjög mikilvægur.

Það er allt hægt í þessu en við þurfum bara nálgast þetta með ákveðnum hætti. Njóta þess að gera hlutina saman. Þá getur ýmis­legt gott gerst. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að veg­ferðin er grýtt. Það þarf að fara í gegnum ýmsar hindranir. Til að mynda geri ég alveg ráð fyrir því að eftir að liðið vann tvo leiki held ég að and­stæðingarnir mæti aðeins öðru­vísi gegn okkur. Það er hrós á leik­mennina og liðið, þeir eru farnir að gera sig meira gildandi. Þetta verður mikil barátta og margir harðir leikir fram undan í þessari deild.“

„Ekki langt að sækja hann ef til kemur“

Varðandi mögu­legar breytingar á leik­manna­hópi Hauka virðist lítið vera á döfinni. Félagið ákvað að slíta sam­starfi sínu við er­lendu leik­mennina Stee­ve Ho You Fat og Ty­son Jolly en samdi um leið við gamal­kunnan vin í De'Sean Par­sons.

„Ráðist var í þessar breytingar áður en að ég kem að borðinu og ég hef í sjálfu sér ekki verið með neinar kröfur um það (að fá inn leik­menn). Ég veit ekki annað en að þetta verði bara sá hópur sem að við vinnum með. Það getur auðvitað tekið ein­hverjum breytingum en ég á ekkert sér­stak­lega von á því. Það hefur ekki verið rætt neitt sér­stak­lega.“

Emil Barja, aðalþjálfari kvenna­liðs Hauka, stýrði karla­liðinu á meðan að þjálfara­leit stóð efir eftir að Maté Dal­may var sagt upp störfum og gerði vel. Ekki eru uppi hug­myndir um að hann verði áfram hluti af þjálfara­t­eymi liðsins.

Emil Barja er þjálfari kvennaliðs HaukaVísir/Pawel Cieslikiewicz

„Það er allavegana ekki langt að sækja hann ef til kemur. Við auðvitað hittumst á hverjum degi og maður á örugglega eftir að eiga í samskiptum við hann. Emil gerði mjög vel eftir að hafa komið inn á mjög erfiðum tíma. Haukamaður í gegn sem sinnti þessum skyldum sem félagsmaður alveg gríðarlega vel. Það ber að hrósa honum fyrir það. Emil er á góðum stað með kvennaliðið sitt og hörð barátta framundan þar. Hann mun einbeita sér að því en við erum saman í þessu allt félagið. Reynum að hjálpa hvor öðrum eins og við mögulega getum.“

Í fyrsta sinn á 40 ára ferli sem hann hættir á miðju tímabili

Friðrik Ingi sagði upp störfum sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur um miðjan síðasta mánuð eftir að hafa tekið við þjálfun þess fyrir yfirstandandi tímabil.

Keflavík hafði unnið allt sem hægt var að vinna á síðasta tímabili en er dottið úr leik í bikarkeppninni á yfirstandi tímabili og er sem stendur í þriðja sæti Bónus deildar kvenna.

Af hverju gekk þetta ekki upp?

„Það er góð spurning,“ svarar Friðrik Ingi. „Stundum er þetta bara þannig að hlutir ganga ekki alveg upp. Í þau skipti sem ég hef starfað hjá Keflavík hefur mér alltaf fundist mjög gott að vinna í Keflavík. Á í mjög miklum og góðum samskiptum við stjórnarmenn, áhorfendur og á mjög marga góða vini í Keflavík.“

„Það voru bara ákveðnir hlutir sem voru í þannig farvegi að mér fannst skynsamlegast að óska eftir því að verða leystur undan störfum. Ég held það hafi verið best fyrir báða aðila. Ég er búinn að vera í þessu lengi og þetta var í raun í fyrsta skipti á mínum fjörutíu ára ferli í þjálfun sem ég hætti á miðju tímabili en einu sinni er allt fyrst. 

Mér fannst þetta bara best, bæði fyrir mig og félagið. Ég ber engan kala til félagsins og óska því bara alls hins besta og hef um leið mikla trú á liðinu. Held að liðið eigi eftir að blanda sér verulega í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn og það kæmi mér ekkert á óvart ef liðið myndi vinna þann stóra í vor.“

Er einhver eftirsjá varðandi það að hafa tekið þetta starf að sér á sínum tíma?

„Nei alls ekki. Lífið er fullt af áskorunum. Maður tekst bara á við hverja raun og yfirleitt er það nú þannig að þegar að maður tekur ákvarðanir þá eru þær réttar. Svo verður maður bara stöðugt að meta hlutina. Svo snýst þetta svolítið um að standa með sjálfum sér. Ég ákvað að stíga fast niður í lappirnar, standa með sjálfum mér og óska eftir því að fá að fara.“

Haukar heimsækja Hött í Bónus deild karla í kvöld og er það fyrsti leikur liðsins undir stjórn Friðriks Inga. Leikurinn hefst klukkan sjö og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport Bónus Deildin 1 rásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×