Innlent

Geta loksins kvatt drenginn sinn heima á Ís­landi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Maciej var í fimmta bekk í Árbæjarskóla.
Maciej var í fimmta bekk í Árbæjarskóla. úr einkasafni

Jarðarför Maciej Andrzej Bieda, tíu ára drengs sem lést á Ítalíu annan í jólum, verður haldin í Landakotskirkju laugardaginn 11. janúar klukkan 13.

Maciej var í jólafríi með foreldrum sínum og systur þegar ekið var á hann þar sem fjölskyldan var á göngu í bænum Nola, nærri Napólí. Bálför var haldin úti á Ítalíu en Maciej verður lagður til hinstu hvílu heima á Íslandi nú á laugardag. 

Foreldrar og systir Maciej komu heim til Íslands um helgina, eftir að hafa þurft að framlengja Ítalíudvölina og ganga þar frá lausum endum. 

Fjölskyldan er pólsk en flutti til Íslands árið 2018 og settist að í Árbæ í Reykjavík. Macije var í fimmta bekk í Árbæjarskóla og æfði fótbolta með Fylki. Vinkona fjölskyldunnar lýsti honum sem ljúfum og hæfileikaríkum dreng, vinamörgum og brosmildum, í viðtali í fréttum Stöðvar 2 sem horfa má á hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Vita ekki hvenær þau komast heim með líkamsleifar drengsins síns

Foreldrar tíu ára drengs sem lést í bílslysi á Ítalíu á annan í jólum vita ekki enn þá hvenær þau komast heim til Íslands með líkamsleifar sonar síns. Fjölskylduvinur, sem stendur að söfnun handa fjölskyldunni, segir samfélagið í Árbæ syrgja ljúfan og hæfileikaríkan dreng.

Samfélagið í Árbæ harmi slegið vegna andláts Maciej

Um tvö hundruð manns mættu á kyrrðar- og bænastund í Árbæjarkirkju í gær til að minnast tíu ára drengs sem lést í bílslysi á Ítalíu á annan í jólum. Sóknarprestur segir samfélagið í Árbæ harmi slegið. Söfnun hefur verið hrundið af stað til að aðstoða fjölskyldu drengsins.

Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu

Tíu ára pólskur drengur sem býr á Íslandi lést af slysaförum á Ítalíu í gær. Drengurinn var ásamt foreldrum sínum, systur og öðrum fjölskyldumeðlimum í fríi í bænum Nola nærri borginni Napólí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×