Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. janúar 2025 08:27 Jørgen Boassen fór með Donald Trump yngri og föruneyti hans í skoðunarferð um Nuuk, höfuðborg Grænlands. AP/Emil Stach Það var múrarinn Jørgen Boassen sem tók á móti Donald Trump yngri þegar hann heimsótti Grænland á dögunum ásamt föruneyti sínu. Hann segir Bandaríkin ekki munu innlima Grænland en að Danmörk hafi algjörlega brugðist varnarskyldu sinni gagnvart grænlensku þjóðinni.
Danskir fjölmiðlar, og raunar um allan heim, loguðu þegar fréttir bárust af því að Donald Trump yngri, sonur verðandi Bandaríkjaforseta, hygðist á ferðalag til Grænlands. Einkaþota Trumps lenti á nýjum alþjóðaflugvelli í Nuuk um hádegisleytið á þriðjudaginn með erfingjann um borð ásamt föruneyti hans. Mikið hefur verið fjallað um þessa heimsókn hans síðan. Þó hann hafi sjálfur sagst vera á Grænlandi sem ferðamaður dylst það engum að faðir hans, verðandi Bandaríkjaforseti, hefur sagst munu innlima Grænland inn í Bandaríkin með góðu eða illu. Hann hefur hótað Dönum refsitollum láti þeir eyjuna ekki af hendi og útilokaði það ekki á blaðamannafundi að beita hervaldi. Einkennishúfuklæddur hópur Grænlendinga tók við Donald Trump yngri og félögum á nýjum alþjóðaflugvelli í Nuuk.AP/Emil Stach Þegar sonur forsetans verðandi steig inn í sal flugvallarins biðu þar um 15 Grænlendingar stoltir með rauðu derhúfurnar á. Fyrir móttökuhópnum fór Jørgen Boassen, múrari og mikill stuðningsmaður Donald Trump. „Mér var boðið til Bandaríkjanna í lok október og byrjun nóvember til að hjálpa til við forsetakosningarnar. Þar kynntist ég fullt af Bandaríkjamönnum í Repúblikanaflokknum og grasrótarhreyfingum þeirra,“ segir hann í samtali við fréttastofu en hann tók þátt í kosningaherferð flokksins, gekk dyra á milli og hvatti Bandaríkjamenn til að greiða atkvæði með Donald Trump. Borðuðu saman hádegismat „Svo fæ ég allt í einu skilaboð á WhatsApp þar sem stóð: Sæll, þetta er Charlie Kirk. Hvernig hefur þú það? Ég fékk símanúmerið þitt hjá fyrrum sendiherranum. Gætirðu sent mér skilaboð ef þú hefur tíma?“ segir Jørgen. Charlie Kirk er bandarískur fjölmiðlamaður og hefur verið dyggur stuðningsmaður Trump og MAGA-hreyfingarinnar allar frá upphafi. Hann þurfti á hjálp Jørgens að halda við að skipuleggja Grænlandsförina. Jørgen átti að fara með þá félaga í sýnisferð um Nuuk. Jørgen og Donald Trump yngri á góðri stundu.Aðsend Hann segist hafa farið með þá um bæinn, sýnt þeim bestu útsýnisstaðina og hvar þeir gætu tekið myndbönd upp fyrir samfélagsmiðla. Þeir borðuðu einnig hádegismat saman á einum veitingastaða bæjarins. „Þeir voru alveg ótrúlega áhugasamir um Grænland og vildu læra meira um það. Þeir ræddu við fólk á förnum vegi og voru mjög forvitnir,“ segir Jørgen. Bandaríkin geti ein varið Grænland Jørgen segir að orðræða Trumps undanfarna daga sé ekki innantóm orð en að hann hafi þó ekki í hyggju að innlima landið með valdi. Hann vilji heldur gera mögulegum óvinum Bandaríkjanna það morgunljóst að Grænland sé hluti af heimsálfunni Ameríku. „Hann vill sýna þeim að Grænland sé ekki leikvöllur Rússanna eða Kínverjanna,“ segir hann. Jørgen segir jafnframt að grænlenska þjóðin vilji ekki verða 51. ríki Bandaríkjanna og að það sé grænlensku þjóðarinnar að taka ákvarðanir um framtíð landsins. Ljóst sé þó að Bandaríkin sé eina landið sem geti raunverulega verndað Grænland. Sjá einnig: Líklega búi meira að baki hugmyndum Trumps Hann lítur til Íslands og sér það sem fyrirmynd fyrir framtíðar samskipti Grænlands við Bandaríkin annars vegar og Danmörku hins vegar. „Það er það sem þjóðin vill en Bandaríkin verður að vera okkar nánasti samstarfsaðili, bæði hvað varnarmál varðar og fleira. Eins og Íslendingarnir voru með herinn í Keflavík. En hagsmunir Bandaríkjanna eru talsvert meiri á Grænlandi en annars staðar. Fyrir Trump er það afgerandi að Grænland sé í beinu samstarfi við Bandaríkin,“ segir hann. Danir brugðist varnarskyldu sinni „Að sjálfsögðu þýðir það ekki að við þurfum að slíta á tengslin við Danmörku. Það er bara eins og Íslendingar sem læra dönsku og geta farið til Danmerkur í nám. Það er ekki svart og hvítt eins og Danir reyna að mála það upp. Það gera þeir mikið og því er ég orðinn þreyttur á. Það er alltaf allt eða ekkert,“ segir Jørgen. „Þeir hafa gjörsamlega brugðist vörnum á grænlensku strandlengjunni. Þeir geta ekki haldið uppi flota eða neinu. Þeir halda að þeir geti varið Grænland með einum hundasleða sem fer upp og niður ströndina einu sinni á veturna sem er fullkomlega galið þegar danska ríkisstjórnin stendur skyndilega í þvílíkum hótunum við Rússland.“ Jørgen og Trump yngri við styttu af Hans Egede, stofnanda Nuuk.Aðsend Hann segir grænlensku þjóðina hafa talsvert meiri áhyggjur af rússnesku herbrölti heldur en bandarísku og segir danska fjölmiðla og orðræðu danskra stjórnvalda skapa sundrungu bæði í Danmörku og á Grænlandi. „Hræðsluáróðursherferð danskra fjölmiðla hefur auðvitað áhrif á vilja Grænlendinga til samstarfs við Bandaríkin. Það hefur haft stór áhrif að fjölmiðlar Dananna hafa haft Trump í sigtinu síðustu átta árin því Trump vildi vinna beint með Grænlandi sem fór hræðilega í taugarnar á Dönunum,“ segir Jørgen. Fari Danir í stríð gerir Grænland það líka Jørgen segir Grænland á flæðiskeri statt í ljósi síaukinnar heiftar orðræðu danskra stjórnvalda í garð Rússlands. „Ef Danmörk fer í stríð við Rússland eða einhvern annan þá er Grænland sjálfkrafa með. Við getum ekki sagt nei eins og Færeyingarnir gera þegar þeir neita að hætta að stunda viðskipti við Rússana. Við neyðumst til að taka þátt í viðskiptabanni Dananna. Það hefur orðið til þess að það er risasvæði sem Rússarnir gætu kíkt á og sagt: Við tökum þetta bara og komum hernum okkar fyrir hér því Danirnir ögra okkur í sífellu.“ Jørgen segist ekki sjálfur vera með öll svörin og að það sé grænlenska þjóðin öll sem ákveði framhaldið. „Við þurfum ekki að missa samband okkar við Danmörku en það sem Danirnir segja er að við séum annað hvort með þeim eða á móti. Það gerir ekkert nema að skapa sundrung innan beggja þjóða.“
Grænland Bandaríkin Danmörk Tengdar fréttir Slæm meðferð Bandaríkjanna á frumbyggjum vekur ótta á Grænlandi Deildarforseti við Háskólann á Grænlandi segir sögu slæmrar meðferðar Bandaríkjanna á frumbyggjum landsins vekja ugg meðal Grænlendinga sem horfa nú fram á mögulega innlimun inn í Bandaríkin sé eitthvað að marka orð verðandi forseta. 9. janúar 2025 17:03 Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps: „Þetta snýst um sjaldgæfa málma, þetta snýst um auðlindir“ Mike Waltz, þingmaður Repúblikanaflokksins og verðandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump, segir Grænland mikilvægt þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Bæði Rússar og Kínverjar væru að láta að sér kveða á norðurslóðum og á Grænlandi mætti þar að auki finna mikið af auðlindum. 9. janúar 2025 09:35 Brugðið vegna ummæla Trumps og segir blikur á lofti í alþjóðamálum Utanríkisráðherra Íslands segir blikur á lofti í alþjóðamálum og áréttar að Grænland sé ekki til sölu. Verðandi Bandaríkjaforseti ásælist landsvæði Grænlendinga og í gær sagðist hann ekki útiloka að hervaldi verði beitt til að svo megi verða. Á meðan spókaði sonur hans sig í umdeildri heimsókn á Grænlandi. 8. janúar 2025 18:31 Mest lesið Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Innlent Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Erlent Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Innlent Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Erlent Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Innlent Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Innlent Stóru eldarnir enn hömlulausir Erlent Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Erlent Fleiri fréttir Trump ekki dæmdur í fangelsi Sagðir hafa greitt heimilislausum til að þykjast vera stuðningsmenn Trumps Staðfesta að 2024 var heitasta árið í mælingasögunni Sóttu sér meira en milljón ára gamlan ís á Suðurskautslandinu Óvænt skilaboð leiddu til ferðar með syni Trumps Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Stóru eldarnir enn hömlulausir Hæstiréttur stöðvar ekki dómsuppsögu í máli Trumps Trúir ekki að Trump muni beita hervaldi Íslendingar þurfi að huga að forvörnum með auknum gróðri og skógi Fimm forsetar viðstaddir útför Carters Myndasyrpa: Að minnsta kosti tvö þúsund hús brunnin í Los Angeles Spjallaði við hæstaréttardómara rétt fyrir áfrýjun Fyrrverandi fjármálaráðherra Svíþjóðar látinn Skotbardagi við forsetahöll Tjad Líkurnar á að öfgahægrimaður verði kanslari fara vaxandi Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps: „Þetta snýst um sjaldgæfa málma, þetta snýst um auðlindir“ „Skóli barnanna er farinn, flestar verslanir og ég veit ekki hversu mörg hús“ Eigandi vefsíðunnar í Pelicot-málinu handtekinn í Frakklandi Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Mette boðar flokksformenn á neyðarfund vegna Grænlands Stjórnlausum eldum fjölgar í LA ESB sektað fyrir að brjóta eigin persónuverndarlög Af hverju langar Trump í Grænland? Leita nýrra leiða til að sækja sýni til Mars Kyrrsetja skuggaskipið vegna slæms ástands Ætlar að hitta kónginn í dag Sjá meira
Slæm meðferð Bandaríkjanna á frumbyggjum vekur ótta á Grænlandi Deildarforseti við Háskólann á Grænlandi segir sögu slæmrar meðferðar Bandaríkjanna á frumbyggjum landsins vekja ugg meðal Grænlendinga sem horfa nú fram á mögulega innlimun inn í Bandaríkin sé eitthvað að marka orð verðandi forseta. 9. janúar 2025 17:03
Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps: „Þetta snýst um sjaldgæfa málma, þetta snýst um auðlindir“ Mike Waltz, þingmaður Repúblikanaflokksins og verðandi þjóðaröryggisráðgjafi Donalds Trump, segir Grænland mikilvægt þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Bæði Rússar og Kínverjar væru að láta að sér kveða á norðurslóðum og á Grænlandi mætti þar að auki finna mikið af auðlindum. 9. janúar 2025 09:35
Brugðið vegna ummæla Trumps og segir blikur á lofti í alþjóðamálum Utanríkisráðherra Íslands segir blikur á lofti í alþjóðamálum og áréttar að Grænland sé ekki til sölu. Verðandi Bandaríkjaforseti ásælist landsvæði Grænlendinga og í gær sagðist hann ekki útiloka að hervaldi verði beitt til að svo megi verða. Á meðan spókaði sonur hans sig í umdeildri heimsókn á Grænlandi. 8. janúar 2025 18:31