Fótbolti

MLS baðst af­sökunar á til­kynningu um rangan Japana

Sindri Sverrisson skrifar
Kyogo Furuhashi er, að minnsta kosti enn, leikmaður Celtic í Skotlandi, öfugt við það sem fram kom í tilkynningu á vef MLS-deildarinnar.
Kyogo Furuhashi er, að minnsta kosti enn, leikmaður Celtic í Skotlandi, öfugt við það sem fram kom í tilkynningu á vef MLS-deildarinnar. Getty/Craig Foy

Bandaríska fótboltadeildin, MLS, neyddist til að biðjast afsökunar eftir að hafa ranglega fullyrt á vef sínum að japanski leikmaðurinn Kyogo Furuhashi væri genginn til liðs við Atlanta United.

Atlanta United leikur undir stjórn Norðmannsins Ronny Deila, sem áður stýrði Celtic, en Furuhashi er einmitt leikmaður Celtic.

Þessi 29 ára Japani, sem er með samning við Celtic sem gildir til 2027, hefur verið orðaður við Atlanta en í gær birtist frétt á vef MLS um að vistaskipti hans væru klár og hann genginn í raðir félagsins.

MLS hefur nú fjarlægt greinina og beðið alla hlutaðeigandi afsökunar, en mistökin virðast hafa legið í því að annar japanskur leikmaður gekk í raðir Atlanta. Fyrrverandi unglingalandsliðsmaðurinn Cayman Togashi samdi nefnilega við Atlanta og tilkynnti félagið um komu hans í gær.

Í yfirlýsingu segjast MLS-menn hafa „fyrir mistök birt grein þar sem rangur leikmaður var sagður hafa samið við MLS-félag. Greinin var umsvifalaust fjarlægð og leiðrétt. MLS biður alla hlutaðeigandi innilega afsökunar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×