Innlent

Stækka leik­skólann Múla­borg við Ár­múla

Atli Ísleifsson skrifar
Í erindi fasteignafélagsins Heima kemur fram að félagið sé tilbúið að breyta annarri og mögulega þriðju hæð hússins við Ármúla 6 úr skrifstofurými í leikskóladeildir og starfsmannarými.
Í erindi fasteignafélagsins Heima kemur fram að félagið sé tilbúið að breyta annarri og mögulega þriðju hæð hússins við Ármúla 6 úr skrifstofurými í leikskóladeildir og starfsmannarými. Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg hyggst ganga til til viðræðna við fasteignafélagið Heima um að stækka húsnæði leikskólans Múlaborgar sem stendur við Ármúla 6. Áætlað er að stækkun leikskólans muni skila sér í fjölgun plássa fyrir 48 til 120 börn.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar kemur fram að Reykjavíkurborg hafi í október síðastliðnum auglýst eftir húsnæði og lóð fyrir leikskóla, 800 til 2000 fermetra húsnæði ásamt 1400 til 1800 fermetra aðliggjandi útileiksvæði.

„Samkvæmt auglýsingunni er miðað við að taka á leigu húsnæði sem er tilbúið til notkunar innan 6-18 mánaða frá undirritun leigusamnings og miðað er við 10-15 ára leigutíma með mögulegri framlengingu. Samþykkt var á fundi borgarráðs í gær að ganga til viðræðna við Heima, í kjölfar erindis félagsins til borgarinnar.

Leikskólinn Múlaborg starfar þegar á fyrstu hæð í húsnæði við Ármúla 8a.Reykjavíkurborg

Stækkun sem rúmar 48-120 börn

Leikskólinn Múlaborg starfar þegar á fyrstu hæð í húsnæði við Ármúla 6 en í erindi fasteignafélagsins Heima kemur fram að félagið sé tilbúið að breyta annarri og mögulega þriðju hæð hússins úr skrifstofurými í leikskóladeildir og starfsmannarými. Grófar hönnunarforsendur af hálfu Reykjavíkurborgar fyrir húsnæðið liggja fyrir og byggja má frumhönnun á þeim. Stefnt verður að því að stækka leikskólann um 455 til 910 fermetra svo hann geti rúmað þrjár til sex deildir fyrir 48 til 120 leikskólabörn til viðbótar við þau 48 börn sem þegar sækja leikskólann á fyrstu hæð hússins. Einnig verður hugað að stækkun leikskólalóðar til að mæta fjölgun barna.

Í erindi Heima kemur fram að húsnæðið hafi þegar verið tekið í gegn að utan; skipt um glugga og fleira. Aðgengi sé frábært, næg bílastæði og lyfta í húsinu. Þá er talað um að áhersla verði lögð á hönnun sem endurspegli grænar lausnir

Stefnt verður að undirritun leigusamnings fyrir lok þessa mánaðar og að leikskólinn verði tilbúinn til notkunar innan tólf mánaða frá undirritun.

Í gær var tilkynnt um leikskóla sem til stendur að byggja í Elliðaárdal,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×