„Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Árni Sæberg skrifar 10. janúar 2025 14:17 Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands í gær. Vísir/Jóhann K Karlmaður hefur verið dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjölda brota í nánu sambandi með því að hafa á endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð fyrrverandi sambúðarkonu sinnar. Hann hótaði meðal annars að myrða foreldra konunnar og dreifa nektarmyndum af henni.
Í dómi Héraðsdóms Austurlands, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir að hafa í mars árið 2023 haldið konunni nauðugri í húsi frá hádegi og fram að kvöldmatarleyti, tekið af henni tölvu og farsíma, hótað því að taka eigið líf, og varnað henni útgöngu með ógnandi framkomu og ofbeldi. Hann hafi tekið konuna hálstaki aftan frá og þrýsti að hálsi hennar þannig að hún gat ekki andað og vafið myndavélasnúru um hönd sér og hótað henni að ganga lengra en nokkru sinni fyrr. Eftir að konan komst út úr húsinu hafi hann hrint henni í jörðina og elt hana að þáverandi heimili hennar. Framangreind háttsemi hafi verið til þess fallin að valda konunni hræðslu, kvíða og ótta um líf sitt, heilsu og velferð. Hótaði öllu illu Maðurinn hafi einnig verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi og brot gegn kynferðislegri friðhelgi, en til vara umsáturseinelti, með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt á tímabilinu mars 2023 til júní 2023, ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar með því að hafa ítrekað sett sig í samband við hana, með símhringingum, sms-skilaboðum, tölvupóstsamskiptum og Messenger skilaboðum og hótað henni, auk þess að hafa mætt fyrir utan heimili hennar að minnsta kosti í eitt skipti, sem hafi allt verið til þess fallið að valda henni hræðslu, kvíða og ótta um líf, heilbrigði og velferð sína og fjölskyldu sinnar. Skilaboðin sem maðurinn sendi konunni hafi verið eftirfarandi: „mamma þín og pabbi þinn verað þá tekinn í dæmið“ „ég geri ykkur öllum eitthvað þangað til ég verð stoppaður en þá kála ég mér líka“ „þú hefur til 24 til að ganga að samningum annars byrjar jiihadið!“ „Losa dekkin á bílnum ykkar svo þið missuð þau og drepist“ „losa dett hja ykkur þannig að þið drepist ef þið farið ákveið hratt“ „brefið fer á miðnætti og ég kem svo upp í egs og leysi dekkinn“ „ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ „ef ég fæ þig ekki færþig enginn“ „þú veist hvað ég get gert“ „fyrir utan þáe rég bara að talaum að studna lögbrot“ „hefur smá tíma“ „ÁÐUR EN ÉG KÚBEINA MIG INN TIL YKKAR OG FRELSISVIPTI YKKUR BÆÐI“ „drep svo pabba þinn“ „heim til þín“ „geri allt vitlaust“ „ég sagðist ætlað finna þig og gerði það þótt það tækilangan tíma,núna sé égþetta frekar auðvelt“ „Kúbein hnefi bensli“ „jiihad heilargstið“ „ekki láta þér bregða ef þú þið slyst“ „slasast“ „What ever dude. Getur ekki verið gott að keyra á ónýtu dekkum með lausa boltam“ „ég finn þig í fjöru þú getur hlaupið en kemst aldrei undan“ „Þetta mun hafa afleiðingar það sem þú ert að gera, you can‘t run butmyou can‘t hide“ „á mynd af þér á píkunni hun fer líka.“ Loks hafi maðurinn endurtekið hótað því að birta eða dreifa nektarmyndum af konunni og upplýsa um leyndarmál hennar eða einkahagi, með eftirfarandi skilaboðum: „sæll dúddi heyrðu mig langar að deila með þér nokkrum sögum ogmyndum af sameiginlgri vinkonu okkar henni [afmáð]...“ „ef þú blokkar þá fer þetta“ „segi honum ALLT“ „[Afmáð], rass, myndir jafnvel þín dýpstu leyndarmál“ „og ég mun ekki hætta...“ „viltu fá að lesa bréfið eða á ég barasenda það“ „Sendi myndir nar á [afmáð] líka. svo hann geti lika fróað sér yfir þeim.“ „á mynd af þér á píkunni hun fer líka.“ „...þar sem þú hefur ákveðið að fara útúr samtalinu þá skaltu vita að [afmáð] svaraði skilaboðunum, og ætlaði ég að gefa þér frest til 18 að koma með eitthvað áður en þetta fer allt í loftið, nýr frestur er til 20 „ætla svo inn í [afmáð] í nótt ganga ur skugga um hvort þú sért flutt eða ekki. vandalism. annars fer þetta allt í almennadreyfingu.“. „myndirnar fara til [afmáð] og svo hendi ég þessu á nokkara a egs.“ „byrjarurð að tala við [afmáð] njóttu dagsins.“ „sendi líka bréfið á foreldra þína. og mydnr líka“ Játaði skýlaust Í dóminum segir að maðurinn hafi játað brot sín skýlaust og ekki hafi verið tilefni til að draga játningu hans í efa. Því hafi málið verið talið sannað án frekari sönnunarfærslu. Refsing hans væri hæfilega ákveðin níu mánaða fangelsisvist en rétt þætti að fresta fullnustu hennar og skilorðsbinda til tveggja ára. Þá skuli maðurinn greiða konunni 800 þúsund krónur í miskabætur og greiða allan sakarkostnað, alls um 2,4 milljónir króna.
Dómsmál Heimilisofbeldi Kynferðisofbeldi Stafrænt ofbeldi Mest lesið „Þetta er ekki sanngjarnt, Einar“ Innlent „Þetta var bara eitthvað sem hún þurfti að stoppa“ Innlent Kennari stakk átta ára stúlku til bana Erlent Eins og hjónunum hafi verið komið fyrir í sérstökum stöðum Innlent Skurðlæknir grunaður um kynferðisbrot gegn 299 börnum Erlent Sýkingin líklega af völdum bacillus cereus Innlent Ásthildur Lóa berst við ríkið fyrir dómi Innlent Hnífurinn fannst í skotti forráðamanna Innlent Fyrst féll meirihlutinn og nú falla trén Innlent Sitja sem fastast og hleypa gröfum og vörubílum ekki fram hjá Innlent Fleiri fréttir Satt eða logið um stefnuræðu forsætisráðherra? Diljá Mist og Jens Garðar oftast nefnd til sögunnar Kæmi ekki á óvart ef drægi til tíðinda í dag Ísland réttir úr kútnum hvað varðar spillingu Óskar eftir að áfrýja dómi fyrir manndráp af gáleysi á geðdeild Þreifingar í Ráðhúsinu og tré felld í Öskjuhlíð Ásthildur Lóa berst við ríkið fyrir dómi Eins og hjónunum hafi verið komið fyrir í sérstökum stöðum Fyrst féll meirihlutinn og nú falla trén Sex kennarar á landinu enn í verkfalli Ríkisstjórnin markalaus með sitt nýfengna vald „Þetta var bara eitthvað sem hún þurfti að stoppa“ Sýkingin líklega af völdum bacillus cereus Líkamsárás, hótanir og umferðarslys „Þetta er ekki sanngjarnt, Einar“ Fyrstu trén felld á morgun Gengu kílómetra með slasaðan ferðamann á börum Segir fullan einhug um öll mál hjá samhentri ríkisstjórn Hnífurinn fannst í skotti forráðamanna „Við í Framsókn erum að setja allt í loft upp“ „Ég er bara pínu leiður“ Stefnuræða forsætisráðherra „Manni finnst að manni sé kippt út úr baráttunni“ Sitja sem fastast og hleypa gröfum og vörubílum ekki fram hjá Óvissa í Ráðhúsinu og dýrustu auglýsingar í heimi Vilja að bankinn „láti af mismunun“ og telja rök hans ekki halda vatni Hamar fannst í bíl hjónanna sem Alfreð ók Fundinum lokið án árangurs Framkvæmdir á Bessastöðum kostuðu 120 milljónir Ráðuneytið biður umboðsmann Alþingis afsökunar Sjá meira