Fótbolti

Schick stjarnan í sterkum sigri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Schick réði úrslitum í kvöld.
Schick réði úrslitum í kvöld. Hesham Elsherif/Anadolu via Getty Images

Bayer Leverkusen vann 3-2 sigur á Borussia Dortmund í fyrsta leik 16. umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Liðið sækir að Bayern München á toppnum.

Leverkusen virðist ætla að heyja titilbaráttu við Bayern München annað árið í röð en önnur lið í deildinni hafa gefið eftir, þar á meðal Dortmund sem sat í sjötta sæti fyrir leik kvöldsins.

Gestirnir frá Leverkusen sendu sterk skilaboð snemma leiks. Nathan Tella veitti þeim forystuna þegar minn en mínúta var liðin og þá forystu tvöfaldaði Tékkinn Patrik Schick á áttundu mínútu. Jamie Gittens lagaði stöðuna fyrir Dortmund þegar aðeins tólf mínútur voru liðnar en 3-1 varð staðan þegar Schick skoraði sitt annað mark fjórum mínútum síðar.

Eftir þessa fjörlegu byrjun var ekki skorað frekar fyrir hlé og staðan 3-1 fyrir Leverkusen í hálfleik.

Gíneumaðurinn Serhou Guirassy minnkaði muninn fyrir Dortmund af vítapunktinum á 79. mínútu en nær komust þeir gulklæddu ekki. Leiknum lauk með 3-2 sigri Leverkusen.

Eftir sigur kvöldsins er Bayer Leverkusen með 35 stig í öðru sæti þýsku deildarinnar, stigi á eftir Bayern München, sem á þó leik til góða. Dortmund er í sjötta sæti með 25 stig í afar jöfnum pakka. Aðeins fjögur stig aðskilja Frankfurt í þriðja sæti (27 stig) og Stuttgart í því tíunda (23 stig.

Dortmund gæti því fallið niður töfluna þegar fleiri leikir sextándu umferðarinnar fara fram um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×