Viðskipti innlent

Oculis rauf 3000 króna múrinn og gott betur

Árni Sæberg skrifar
Einar Stefánsson hringdi Kauphallarbjöllunni í apríl. Hann hefur byggt upp Oculis ásamt Þorsteini Loftssyni frá stofnun árið 2003.
Einar Stefánsson hringdi Kauphallarbjöllunni í apríl. Hann hefur byggt upp Oculis ásamt Þorsteini Loftssyni frá stofnun árið 2003. Vísir/Vilhelm

Hlutabréfaverð augnlyfjafélagsins Oculis hækkaði langmest allra félaga í Kauphöllinni í dag, um 13,79 prósent. Veltan með bréf í félaginu var sömuleiðis sú langmesta í dag, 2,2 milljarðar króna. Það sem af er ári hefur verðið hækkað um 34 prósent og frá skráningu á markað hérlendis í apríl síðastliðnum hefur það hækkað um 95 prósent.

Gengi Oculis hefur verið á miklu flugi undanfarið, sér í lagi eftir að tilkynnt var um jákvæðar niðurstöður rannsóknar á lyfi félagsins við sjóntaugabólgu þann 6. janúar.

Í lok dags 23. apríl, þegar félagið var skráð á markað hér á landi, stóð gengi bréfa í félaginu í 1.690 krónum. Gengið fór í dag í fyrsta skipti upp fyrir 3.000 krónur á hlut og endaði í 3.300 krónum. Það gerir hækkun upp á 95,27 prósent á innan við níu mánuðum.

Gengi bréfa í Eimskip hækkaði næst mest, um 1,91 prósent í viðskiptum upp á 121 milljón króna. Icelandair leiddi lækkanir en verð bréfa í félaginu lækkaði um 3,99 prósent í 149 milljóna króna viðskiptum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×