Enski boltinn

Glazer-systkinin dvöldu á Vopna­firði í sumar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Avram Glazer og Sir Jim Ratcliffe á leik með Manchester United, félaginu sem þeir eiga.
Avram Glazer og Sir Jim Ratcliffe á leik með Manchester United, félaginu sem þeir eiga. getty/Richard Heathcote

Fjögur af sex börnum Malcolms Glazer komu heimsóttu Vopnafjörð síðasta sumar. Þau voru þar í boði Sir Jim Ratcliffe sem á Manchester United ásamt Glazer-fjölskyldunni.

Ratcliffe var á Íslandi um miðjan júlí, sömu helgi og England mætti Spáni í úrslitaleik Evrópumótsins. Hann sendi einmitt enska landsliðinu kveðju úr veiðihúsi við Vopnafjörð. Ratcliffe hefur undanfarin ár keypt jarðir á Norðuasturlandi, sem nema ríflega hundrað þúsund hekturum, í gegnum félag sitt, Six Rivers Iceland, sem hefur það að markmiði að vernda villta laxinn í Norður-Atlantshafi.

Ratcliffe var ekki einn á ferð á Íslandi í júlí heldur dvöldu fjögur af sex Glazer-systkinunum hjá honum. Austurfrétt greinir frá.

Bræðurnir Joel, Avram og Bryan og systir þeirra, Darcie, komu til Vopnafjarðar og veiddu þar ásamt Ratcliffe. Samkvæmt Austurfrétt voru Glazer-systkinin hér á landi í nokkra daga.

Um miðjan júlí voru sex einkaþotur á Egilsstaðaflugvelli, þar af ein sem er skráð á félag í Flórída, dvalarstað Glazer-fjölskyldunnar. Fjórar einkaþotanna voru í eigu Ratcliffes.

Hinn 72 ára Ratcliffe og félag hans, INEOS, eignuðust fjórðungshlut í Manchester United í árslok 2023. Ratcliffe og félagar hans tóku við stjórn fótboltamála hjá United og hafa ráðist í mikinn niðurskurð hjá félaginu. Um 250 manns misstu meðal annars vinnuna hjá United.

Síðasta vor varð United bikarmeistari en illa gekk í upphafi þessa tímabils og Erik ten Hag var rekinn sem knattspyrnustjóri liðsins. Við starfi hans tók Ruben Amorim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×