Erlent

Hamas og Ísrael komast að sam­komu­lagi um vopna­hlé

Lovísa Arnardóttir skrifar
Fjöldi fólks hefur safnast saman á götum Tel Avív til að fagna því að Hamas og Ísrael hafi náð saman og að gíslunum verði sleppt.
Fjöldi fólks hefur safnast saman á götum Tel Avív til að fagna því að Hamas og Ísrael hafi náð saman og að gíslunum verði sleppt. Vísir/Getty

Ísrael og Hamas hafa komist að samkomulagi um vopnahlé sem á að binda á enda á fimmtán mánaða átök á Gasa. Vopnahléið á að hefjast formlega á sunnudag. 

Samninganefndir hafa unnið að samkomulaginu í marga mánuði. Stjórnvöld í Ísrael eiga enn eftir að samþykkja tillöguna samkvæmt fréttum AP en á erlendum miðlum er haft eftir embættismönnum að búið sé að komast að samkomulagi. Þar segir jafnframt að fólk sé komið saman í Khan Younis á Gasa til að fagna þessum tímamótum og í Tel Avív í Ísrael.

Forsætisráðherra Katar Sheikh Mohammed bin Abdulrahman Al Thani hefur staðfest samkomulagið á blaðamannafundi. Hann segist hafa trú á því að allir aðilar muni virða samkomulagið. Það muni eflaust koma einhver vandamál upp við innleiðingu en allir aðilar séu tilbúnir til að takast á við þau.

„Þetta er vonandi síðasta blaðsíðan í þessu stríði,“ sagði Al Thani á blaðamannafundinum.

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir samkomulagið sem Hamas og Ísrael hafa samþykkt byggt á tillögu sem hann lagði fram í maí á þessu ári og var stutt af Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Biden fagnar því að búið sé að ná samkomulagi um vopnahlé, frelsun gísla og flutning hjálpargagna til Gasa.

Biden sagði í yfirlýsingu sinni að Bandaríkjamenn muni aðstoða við frelsun gíslanna. Þá segir hann að í fyrsta fasa verði hægt að tryggja flutning hjálpargagna til Gasa og að á næstu sex vikunum verði samið um annað fasa sem sé varanlegur endir stríðsins.

Þá segir hann að taki samningaviðræður lengri tíma en sex vikur, eins og lagt er til í planinu, muni vopnahléið samt halda. Vopnahléið muni halda eins lengi og viðræður séu í gangi. Að loknum fasa tvö verði vopnahléið varanlegt.

Biden sagði vegferðina að þessum samningi hafa verið erfiða og jafnvel þá erfiðustu sem hann hefði tekið þátt í allan sinn feril.

„Palestínubúar hafa gengið í gegnum helvíti,“ sagði Biden og að íbúar Gasa geti loksins hafið uppbyggingu á ný.

Fjölskyldur gíslanna sem haldið hefur verið á Gasa í fimmtán mánuði kveiktu á blysum þegar þau fengu að vita að þeim yrði sleppt.Vísir/EPA

Fyrsti fasi hefst á sunnudag

Á ísraelska miðlinum Times of Israel segir að fyrstu gíslunum verði sleppt á sunnudag og að ríkisstjórn Ísrael muni hittast á morgun til að greiða atkvæði um tillöguna. 

Í frétt Israel Times segir að hafin sé vinna við að opna landamærin við Rafah svo hægt sé að koma alþjóðlegri neyðaraðstoð til Gasa. Stjórnvöld í Egyptalandi séu að undirbúa sig til að flytja til Gasa gífurlegt magn hjálpargagna.

Þrír fasar

Reuters segir að í fyrsta fasa samkomulagsins verði 33 gíslum sleppt, öllum konum, börnum og karlmönnum sem eru eldri en 50 ára úr haldi Hamas. 

Í öðrum fasa, sem hefjast á 16. degi vopnahlésis, verði öðrum gíslum sleppt og komið á varanlegu vopnahléi og herlið Ísraela yfirgefi Gasa. Í þriðja fasa á að skila líkum látinna gísla og hefja uppbyggingu á Gasa að nýju. 

Palestínubúar í Khan Younis bregðast við því að búið sé að komast að samkomulagi um vopnahlé.Vísir/EPA

Samkomulagið hefur ekki verið birt opinberlega en í frétt Reuters segir að það muni taka um sex vikur fyrir herlið Ísrael að koma sér út af Gasasvæðinu og sleppa öllum gíslum á Gasa og föngum í Ísrael. 

Á vef BBC segir að Isaac Herzog forseti Ísraels hafi fundað með forseta Rauða krossins til að undirbúa frelsun gíslanna.

Í tilkynningu frá skrifstofu forsetans hafi komið fram að Herzog hafi ítrekað mikilvægi þessa verkefnis. Í tilkynningunni segir jafnframt að teymi Rauða krossins hafi greint forsetanum frá undirbúningi vegna flutnings gíslanna og þeim áskorunum sem Rauði krossinn standi frammi fyrir.

Átökin hófust í október árið 2023 þegar Hamas réðst inn í Ísrael og drápu um 1.200 manns og tóku 250 gísla til Gasa. Samkvæmt samkomulaginu verður öllum gíslum sem enn eru í haldi á Gasa sleppt á gildistíma samkomulagsins. Fram kemur á BBC að þeir séu 94 en 34 af þeim séu taldir látnir.

Trump búinn að staðfesta

Þar stendur jafnframt að Hamas-liði hafi staðfesti við BBC að Hamas hafi tilkynnt sáttamiðlurum frá Katar og Egyptalandi að þeir hafi samþykkt vopnahléstillöguna. Hann hafi staðfest þetta við BBC á sama tíma og fjallað var um það í ísraelskum miðlum að Hamas hafi gert kröfu um breytingar á tillögunni rétt áður en halda átti blaðamannafund um málið. Kröfur þeirra eiga að hafa tengst Philadelphi ganginum sem er landsvæði á Gasa við Egyptaland.

Á Gasa er einnig fagnað. Myndin er tekin í Deir al-Balah á Gasa.Vísir/AP

Eftir árás Hamas í október 2023 réðust Ísraelar inn á Gasa og hafa drepið um 46 þúsund manns síðan samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Gaza sem stýrt er af Hamas-liðum.

Donald Trump verðandi forseti Bandaríkjanna birti fyrir stuttu tilkynningu á samfélagsmiðlinum sínum Truth social að samninganefndir hefðu komist að samkomulagi og að öll gíslunum yrði sleppt fljótlega.

Fréttin er í vinnslu og hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×