Viðskipti innlent

Berg­lind Una ný for­stöðu­kona Digital Labs hjá Origo

Lovísa Arnardóttir skrifar
Berglind Una kemur til Origo frá Gangverk.
Berglind Una kemur til Origo frá Gangverk. Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson

Berglind Una Svavarsdóttur hefur tekið við sem forstöðukonu Digital Labs hjá Origo. Í tilkynningu segir að Digital Labs deildin veiti þjónustu og ráðgjöf á sviði stafrænnar umbreytingar, veflausna, hagnýtingu gagna og gervigreindar.

„Við erum mjög ánægð að fá Berglindi Unu til liðs við okkur í Origo. Hún kemur með mikinn kraft og dýrmæta reynslu af stafrænum umbreytingum og þróun, sem styrkir okkar stefnu í framúrskarandi hugbúnaðargerð. Origo leggur áherslu á snjallar lausnir með jákvæða notendaupplifun, hagnýtingu gagna og gervigreindar með það markmið að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini. Með Berglindi fáum við öflugan liðsfélaga í okkar vegferð og erum sannfærð um að hún muni hafa jákvæð áhrif á þróun og vöxt núverandi og framtíðar viðskiptavina Origo,” segir Árni Geir Valgeirsson er framkvæmdastjóri hugbúnaðarlausna hjá Origo.

Berglind Una hefur starfað hjá Gangverk frá 2018, þar af sem Delivery Lead, þar sem hún leiddi þverfagleg og fjölþjóðleg teymi í stafrænni þróun fyrir viðskiptavini á borð við Sotheby’s og Kviku Banka. Síðasta árið hefur hún starfað sem Head of Operations hjá Basta, sprotafyrirtæki sem stofnað var af Gangverk og erlendum fjárfestum, þar sem hún stýrði rekstri og vöruþróun.

Berglind Una er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur ásamt því lokið markþjálfun og menntun í QA.

„Eftir sjö frábær ár hjá Gangverk geng ég stolt frá borði og tek þakklát við nýju hlutverki sem forstöðukona Digital Labs hjá Origo. Ég er afar spennt að taka þátt í ótal krefjandi og spennandi verkefnum fyrir núverandi og nýja viðskiptavini Origo“, segir Berglind Una.


Tengdar fréttir

„Fullt af íslenskum fyrirtækjum í miklum vandræðum með þetta“

„Ég lærði textíl í Myndlistaskóla Reykjavíkur því ég hef alltaf verið mjög hrifin af handverki og hönnun,“ segir Ragnheiður Stefánsdóttir, ein af forsprökkurum Flöff, nýsköpunarfyrirtæki sem ætlar að þæfa nýjan textíl úr ónýtum textílúrgangi.

Ráðinn for­stöðumaður við­skiptaþróunar hjá Ofar

Ísleifur Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá tæknifyrirtækinu Ofar og tekur hann einnig sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Hlutverk hans verður að samræma og efla sölu og markaðsókn tekjusviða fyrirtækisins ásamt því að finna ný tækifæri til vaxtar.

Not­enda­lausnir Origo verða Ofar

Origo lausnir ehf., sá hluti Origo sem hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á notendabúnaði og tæknilausnum, hefur fengið nafnið Ofar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×