Enski boltinn

Hlín til liðs við Leicester City

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hlín átti frábært tímabil með Kristianstad á síðustu leiktíð og hefur nú samið við Refina í efstu deild kvenna á Englandi.
Hlín átti frábært tímabil með Kristianstad á síðustu leiktíð og hefur nú samið við Refina í efstu deild kvenna á Englandi. Kristianstad

Leicester City hefur fengið Hlín Eiríksdóttur, framherja íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í sínar raðir. Hlín lék áður með Kristianstad í Svíþjóð.

Emma Sanders á BBC, breska ríkisútvarpinu, greindi frá því fyrr í dag að Leicester City væri á höttunum eftir framherja og að Hlín væri efst á blaði.

Nú hefur Leicester - sem er í harðri fallbaráttu og þarf sárlega á mörkum að halda - tilkynnt komu Hlínar. Liðið er sem stendur í 11. sæti af tólf liðum, fjórum stigum frá Crystal Palace sem situr í botnsætinu eftir tólf leiki. Refirnir hafa aðeins skorað fimm mörk í deildinni og vonast til að Hlín veiti liðinu innblástur fram á við.

„Ég er virkilega ánægð með að vera komin og hlakka til að byrja að æfa með liðinu. Ég kem hingað með mikinn metnað og vilja til að vinna. Þetta er frábært tækifæri fyrir mig,“ sagði Hlín við undirskriftina.

Hin 24 ára gamla Hlín skrifaði undir samning til loka tímabilsins 2027 og getur tekið þátt strax í næsta leik sem er gegn Everton á sunnudaginn kemur.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×