Innlent

Segir nýja for­gangs­röðun jarð­ganga uppi á borðinu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Eyjólfur Ármannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Eyjólfur Ármannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Sigurjón Ólason

Nýr samgönguráðherra boðar kraftmikla vegagerð í landinu, en þó ekki fyrr en búið verður að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ráðherrann segir að ný forgangsröðun jarðganga sé uppi á borðinu.

Í fréttum Stöðvar 2 var farið á útboðsþing Samtaka iðnaðarins í dag. Þar kynntu fulltrúar opinberra aðila áform sín um framkvæmdir ársins. Ef þau rætast öll stefnir í að verk fyrir 264 milljarða króna verði boðin út í ár, sem yrði tvöföldun milli ára.

Stærstu útboðin eru áformuð hjá Landsvirkjun en þar er óvissan mest enda tvísýnt um Hvammsvirkjun.

Eyjólfur Ármannsson, nýr samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, boðar kraftmiklar framkvæmdir en þó ekki strax.

Ráðherrann á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í dag.Sigurjón Ólason

Fyrsta verkefni ríkisstjórnarinnar er að ná niður verðbólgunni, ná niður vaxtastiginu. Svo getum við byrjað,“ segir ráðherrann, sem hyggst kynna nýja samgönguáætlun í haust. Hann vill þó ekki gefa upp neina forgangsröðun núna.

„Þú verður bara að vera í þinginu þegar ég mæli fyrir samgönguáætlun. Svo einfalt er það.“

Síðasta Alþingi var áður búið að setja Vestfirði í forgang á þessu ári.

„Aðalatriðið er að klára Dynjandisheiði, klára Gufudalssveitina. Þetta eru stórhættulegir vegir og ég hef keyrt þetta margoft sjálfur, meira að segja í myrkri.

En það er langur listi af framkvæmdum sem þarf að fara í,“ segir Eyjólfur.

Smíði brúa yfir Gufufjörð og Djúpafjörð verður boðin út sem tvö verk, í marsmánuði og í haust.

Á útboðsþinginu kynnti fulltrúi Vegagerðarinnar að tvær brýr yfir Gufufjörð og Djúpafjörð yrðu boðnar út í marsmánuði en stærsta brúin yfir Djúpafjörð yrði boðin út í haust.

Þá á endurbygging norðausturvegar um Brekknaheiði að hefjast í ár en breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi milli Vallár og Hvalfjarðarganga frestast enn.

Ráðherrann segist einnig ætla að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð. En verða Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar áfram í forgangi?

Svona er gangamunni Fjarðarheiðarganga í Seyðisfirði hugsaður.VEGAGERÐIN/MANNVIT

„Það mun bara koma í ljós í haust. Ég mun mæla fyrir nýrri samgönguáætlun í haust.

Við erum að vinna í endurskoðun núna. Ég er óbundinn af fyrri áætlun. Þetta er endurskoðun á áætluninni og þá munum við fara í þá vinnu.“

Og segir einnig opið að velja annan jarðgangakost á Austfjörðum.

„Það er allt uppi á borðinu. Allt uppi á borðinu hvað þetta varðar.

Ég hef heyrt þessa umræðu. Það eru mikilvæg jarðgöng fyrir austan. Líka fyrir vestan og norðan.

Þannig að þetta á bara allt eftir að koma í ljós hver forgangsröðunin verður. Ég veit að það er stóra málið,“ segir ráðherra samgöngumála í viðtali sem sjá má hér:


Tengdar fréttir

Vestfirðingar þokast nær langþráðum vegabótum

Borgarverk í Borgarnesi átti lægsta tilboð í næsta áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði og reyndist tilboð verktakans 280 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Vegagerðin snertir helsta náttúrudjásn Vestfjarða, fossinn Dynjanda.

Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður

Fern ný jarðgöng verða undirbúin, Fossvogsbrú sett af stað og lykilvegir byggðir upp á Vestfjörðum og á Norðausturlandi. Breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi frestast hins vegar, samkvæmt samgönguáætlun næsta árs, sem kynnt var í dag.

Tvenn göng á Mið-Austurlandi áætluð sjö milljörðum ódýrari

Ákvörðun um lengstu og dýrustu veggöng Íslands, Fjarðarheiðargöng til Seyðisfjarðar, bíður Alþingis núna á vordögum. Annar valkostur, sem margir Austfirðingar hallast fremur að, tvenn göng milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar, yrði hins vegar sjö milljörðum króna ódýrari, að mati Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×