Innlent

Eins og hjónunum hafi verið komið fyrir í sér­stökum stöðum

Jón Þór Stefánsson skrifar
Alfreð Erling Þórðarson mætti fyrir héraðsdóm í gær en vildi engu bæta við fyrri framburð sinn hjá lögreglu.
Alfreð Erling Þórðarson mætti fyrir héraðsdóm í gær en vildi engu bæta við fyrri framburð sinn hjá lögreglu. Vísir/Vilhelm

Talið er að Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðingur, sem er grunaður um að hafa orðið eldri hjónum að bana í Neskaupstað í fyrra, hafi mögulega fært við líkum eða líkömum þeirra látnu og fært annað þeirra í þvingaða stöðu.

Alfreð Erling er grunaður um að hafa orðið eldri hjónunum að bana á heimili þeirra við Strandgötu í Neskaupstað í lok ágúst. Hjónin fundust látin inni á baðherbergi á heimilinu. 

Sama dag var Alferð Erling handtekinn á Snorrabraut í Reykjavík, en þar ók hann á bíl í hjónanna. Í bílnum fannst hamar sem hann er grunaður um að hafa notað við verknaðinn.

Sérfræðingur hjá tæknideild lögreglu, sem kom á vettvang sem hjónin fundust látin, gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann sagði að strax hefði verið ljóst að þarna hefði ekki átt sér stað slys, það sem gerðist hefði verið af mannavöldum.

Þá sagði hann lík hjónanna hafa verið í sérstökum stöðum inni á baðherbergi heimili þeirra. Það væri eins og þeim hefði verið komið þannig fyrir. Þetta hafi sérstaklega átt við lík eiginkonunnar sem hafi verið í mjög þvingaðri stöðu.

„Ég sé fyrir mér að það geti verið erfitt að koma fætinum sjálfur fyrir í þessa stöðu,“ sagði sérfræðingurinn.

Umræddur sérfræðingur vann blóðferlaskýrslu í málinu. Hann telur að eiginmaðurinn hafi verið sleginn, ekki færri en tveimur höggum, eftir að hann hafði fallið til jarðar.

Líklega hafi atburðarásin verið þannig að Alferð Erling hafi slegið til eiginmannsins í forstofu hússins, og elt hann eða fælt að baðherberginu. Þar hafi Alfreð aftur slegið til hans og svo fært hann að baðkari og slegið hann svo aftur. Síðan hafi hann veist að eiginkonunni og slegið hana margítrekað.

Blóð af báðum á öllum fötum Alfreðs

Annar sérfræðingur hjá tæknideild lögreglu, sem meðhöndlar lífsýni, gaf skýrslu. Hún sagði rannsókn hafa leitt í ljós að lífsýni, úr báðum látnu, hjónunum, hafa fundist á hamrinum sem Alferð Erling er grunaður um að hafa notað.

Bæði var blóð úr þeim á hamarshöfðinu og DNA af skaftinu. Jafnframt hafi fundist blóð á nánast öllum fötum Alferðs en þó hafi verið áberandi meira blóð úr konunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×