Helen er búsett í London og hefur verið að gera öfluga hluti í fyrirsætuheiminum. Hún er á skrá hjá íslensku skrifstofunni Ey Agency ásmt PMR skrifstofunni í London, PMA í Þýskalandi og Le Management í Skandinavíu.

Hún hefur gaman að fjölbreytileika starfsins og naut sín vel í þessum tökum fyrir Agent Provocateur en hún hefur unnið mikið með þeim undanfarin ár.
„Þetta er mjög professional sett sem er leitt af miklu kvennateymi. Hönnuður, ljósmyndari, stílisti og aðstoðarfólk eru allt konur og það er ótrúlega vel farið að öllu.“

Hún segir sömuleiðis að það sé lagt upp úr því að hafa andrúmsloftið þægilegt og öruggt.

„Maður stendur auðvitað hálf berskjaldaður á nærfötunum í heilan dag og því er mikilvægt að manni sé látið líða vel og öruggum. Það er alltaf stemning á þessu setti og góð tónlist er lykilatriðið.
Ég hef verið í verkefnum með Agent Provocateur í að vera tvö ár núna og mér finnst alltaf jafn gaman að koma á sett með þessu teymi sem er orðið að vinum mínum. Svo eru þetta svo ótrúlega falleg nærföt að mig langar að eignast allt sem ég klæðist,“ segir Helen brosandi að lokum.