Leik lokið: Haukar - Valur 81-85 | Kreistu út sigur á síðustu stundu gegn föllnum Haukum Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. mars 2025 21:00 Kristinn Pálsson og aðrir leikmenn Vals voru ekki upp á sitt besta í kvöld, en gerðu það sem þurfti undir lok leiks. vísir/hulda margrét Valur sótti 85-81 sigur gegn Haukum á Ásvöllum í nítjándu umferð Bónus deildar karla. Valsmenn voru langt frá sínu besta í kvöld, en skiptu um gír undir lokin og sóttu gríðarmikilvægan sigur. Haukar voru fallnir fyrir leik og úrslitin hafa því engin áhrif á þeirra framtíð. Valsmenn vinna hins vegar mikilvæg stig í baráttunni um heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Stemningsskot í fyrstu sóknunum Hilmir Arnarson byrjaði leikinn á því að setja tvo þrista og taka sex stiga forystu fyrir heimamenn. Haukar héldu svo áfram að hitta vel úr sínum skotum og spiluðu fína vörn gegn fremur slökum og áhugalausum sóknarleik Valsmanna. Haukar voru með fimm stiga forystu 26-21 eftir fyrsta leikhluta. Seppe D'espallier byrjaði svo annan leikhlutann á því að stela boltanum af Kristófer Acox og koma þeim í enn betra skap. Pressulausir heimamenn Heimamenn héldu áfram að spila stórvel, eins og pressulaus lið eiga til að gera, á meðan Valsmenn voru úr takt við það sem maður þekkir af þeim vanalega. Staðan 42-38 í hálfleik. Pressuleysið hélt áfram að henta Haukum í seinni hálfleik, allir leikmenn virtust njóta sín vel inni á vellinum, liðið spilaði skemmtilega saman og skotin duttu. Ungu strákarnir Hilmir og Ágúst nutu sín hvað mest og settu nokkur erfið skot ofan í. Lítil leikgleði hjá gestunum Aftur á móti var litla leikgleði að finna hjá Valsmönnum og útlitið var orðið ansi svart þegar þriðja leikhluta lauk, staðan 68-60. Valsmönnum tókst þó einhvern veginn að hrista sig saman fyrir lokakaflann, liðið spilaði miklu ákafari vörn og harkaði í sóknarleiknum, þeim stigum sem þurfti á töfluna. Kreistu út sigur Á endanum var munurinn milli liðanna sá að Valsmenn vildu og máttu alls ekki tapa, en tap skipti Hauka litlu máli. Þess vegna fór svo, að Haukar spiluðu betur þrjá af fjórum leikhlutum, en Valur vann leikinn á einskærum sigurvilja Atvik leiksins Til marks um að sigurvilji Valsmanna hafi verið meira má nefna atvik sem átti sér stað þegar rétt rúmlega mínúta eftir. Valsmaðurinn Kári Jónsson keyrði á körfuna og setti niður fáránlega erfitt sneiðskot. Hinum megin keyrði Everage Richardson á körfuna fyrir Hauka, en sótti viljandi villu frekar en að klára færið almennilega, klúðraði svo báðum vítum og virtist ekkert miður sín. Hefði getað minnkað muninn í tvö en hélt Valsmönnum fjórum stigum yfir og gaf þeim boltann. Sigurinn var þá svo gott sem kominn fyrir gestina. Bónus-deild karla Haukar Valur