Ættbálkaleiðtogar felldir í árás al-Shabaab Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2025 13:39 Vígamenn al-Shabaab hafa um árabil barist gegn yfirvöldum í Sómalíu. AP/Farah Abdi Warsameh Vígamenn hryðjuverkasamtakanna al-Shabaab felldu að minnsta kosti sex manns og þar af tvo ættbálkaleiðtoga í bænum Beledweyne í Sómalíu í dag. Fyrstu sprengdi maður sig upp í bíl fyrir utan hótel í bænum og skutu vígamennirnir sér svo leið þar inn.
Umrætt hótel er notað sem fundarstaður ættbálkaleiðtoga á svæðinu og yfirmanna hersins. Í dag átti sér stað fundur milli slíkra leiðtoga þar sem þeir voru að ræða sameiginlega baráttu þeirra gegn al-Shabaab en hryðjuverkamenn samtakanna hafa um árabil barist til að fella stjórnvöld Sómalíu. Fregnir um fjölda látna hafa verið á nokkru reiki, að virðist eftir því hvaða embættismenn blaðamenn ytra hafa rætt við. AP fréttaveitan segir að minnsta kosti sex liggja í valnum og þýska fréttaveitan DPA segir tólf. Þá eru einhverjir sagðir hafa verið fluttir á sjúkrahús. Al-Shabaab stjórnar hlutum Sómalíu en her ríkisins, auk sveita frá Afríkusambandinu, hefur gengið illa að ráða niðurlögum hryðjuverkasamtakanna. Beledweyne er héraðshöfuðborg Hiran-héraðs en þar hafa vígamenn al-Shabaab verið virkir. Vígamennirnir hafa einnig verið virkir og gert árásir í Kenía og Úganda á undanförnum árum. Íslamska ríkið er einnig umsvifamikið í Sómalíu og mun vígamönnum samtakanna hafa vaxið ásmegin þar.
Sómalía Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent Eldur kom upp í seilingarfjarlægð frá gashylkjum og þvottaefni Innlent Búið að slökkva eldinn í Hlíðunum Innlent „Ég hef ekkert með einkaskóla að gera“ Innlent Bíll hafnaði á hliðinni í miðborginni Innlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Komugjöld á ferðamenn séu út í hött Innlent Fjórir drengir sem voru í bílnum slösuðust allir Innlent Snjallsímar undanskildir tollunum Erlent Fjórir slasaðir eftir alvarlegt slys Innlent Fleiri fréttir Ætla í „öfluga“ yfirtöku á Gasaströndinni Snjallsímar undanskildir tollunum Létt fólk hvatt til að halda sig innandyra til að fjúka ekki Menendez bræðurnir nær frelsinu Skjótasta leiðin að friði að verða við kröfum Rússa Þessi Airbus gæti flogið á íslenskri orku til Oslóar Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Ráku yfirmann herstöðvarinnar á Grænlandi eftir heimsókn Vance Ætla að hætta að safna gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Sjá meira