Báðir leikirnir fara fram á Pinatar Arena á Spáni svo U21-landsliðið verður í námunda við A-landslið Íslands sem spilar heimaleik sinn við Kósovó, í umspili Þjóðadeildarinnar, í Murcia 23. mars.
Ólafur Ingi verður með Ara Frey Skúlason, fyrrverandi félaga sinn úr landsliðinu, sem aðstoðarmann í komandi leikjum þar sem að Lúðvík Gunnarsson verður staddur í verkefni með U17-landsliðinu.
Fimm leikmenn í U21-hópnum koma til með að spila sinn fyrsta leik fyrir liðið en það eru Ásgeir Helgi Orrason úr Breiðabliki, Baldur Kári Helgason úr FH, Birgir Steinn Styrmisson úr KR og þeir Haukur Andri Haraldsson og Hinrik Harðarson úr ÍA.
Átta leikmenn í hópnum spila utan Íslands en þer á meðal er markametshafinn Benoný Breki Andrésson sem verið hefur sjóðheitur með Stockport í ensku C-deildinni að undanförnu. FH-ingurinn Logi Hrafn Róbertsson, sem nú er leikmaður Istra í Króatíu, er reyndasti leikmaður liðsins með 13 U21-leiki á ferilskránni.
KR á flesta leikmenn í hópnum eða fjóra talsins. Stjarnan, Breiðablik og ÍA eiga tvo leikmenn hvert og Keflavík og FH einn leikmann hvort félag.
U21-hópurinn
- Ásgeir Orri Magnússon - Keflavík - 1 leikur
- Halldór Snær Georgsson - KR - 1 leikur
- Logi Hrafn Róbertsson - NK Istra - 13 leikir
- Hlynur Freyr Karlsson - Brommapojkarna - 9 leikir
- Eggert Aron Guðmundsson - Elfsborg - 8 leikir
- Hilmir Rafn Mikaelsson - Viking Stavanger - 8 leikir, 1 mark
- Daníel Freyr Kristjánsson - FC Fredericia - 6 leikir
- Benoný Breki Andrésson - Stockport FC - 5 leikir, 1 mark
- Guðmundur Baldvin Nökkvason - Stjarnan - 2 leikir
- Adolf Daði Birgisson - Stjarnan - 1 leikur
- Ágúst Orri Þorsteinsson - Breiðablik - 1 leikur
- Helgi Fróði Ingason - Helmond Sport - 1 leikur
- Jóhannes Kristinn Bjarnason - KR - 1 leikur
- Júlíus Mar Júlíusson - KR - 1 leikur
- Róbert Frosti Þorkelsson - GAIS - 1 leikur
- Ásgeir Helgi Orrason - Breiðablik
- Baldur Kári Helgason - FH
- Birgir Steinn Styrmisson - KR
- Haukur Andri Haraldsson - ÍA
- Hinrik Harðarson - ÍA