Innlent

Bein út­sending frá Bessa­stöðum: Guð­mundur tekur við af Ást­hildi

Jón Þór Stefánsson skrifar
Kristrún Frostadóttir mætti á fund forseta Íslands.
Kristrún Frostadóttir mætti á fund forseta Íslands. Vísir/Anton Brink

Tveir ríkisráðsfundir munu fara fram á Bessastöðum í dag. Fyrirhugað er að fyrri fundurinn muni hefjast klukkan 15 en sá síðari fimmtán mínútum síðar.

Fylgst verður með gangi mála á Stöð 2 Vísi í spilaranum hér fyrir neðan.

Gera má ráð fyrir að á fyrri fundinum muni Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, veita Ásthildi Lóu Þórsdóttur lausn úr embætti sem barna- og menntamálaráðherra. Hún tilkynnti um afsögn sína á fimmtudagskvöld.

Jafnframt má gera ráð fyrir að á seinni fundinum verði nýr ráðherra skipaður. Í fréttatilkynningu frá Flokki fólksins er greint frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson muni taka við embættinu af Ásthildi Lóu.

„Hann er einn reynslumesti þingmaður flokksins og hefur setið á Alþingi allt frá því flokkurinn fékk fyrst kjörna fulltrúa á þing í kosningunum 2017,“ segir í tilkynningunni.

Þá mun Ragnar Þór Ingólfsson taka við embætti þingflokksformanns af Guðmundi Inga. Og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir mun taka við af Guðmundi Inga sem formaður velferðarnefndar. Þá mun Sigurjón Þórðarson verða fulltrúi flokksins í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.

„Flokkur fólksins þakkar Ásthildi Lóu fyrir frábæra frammistöðu í embætti mennta- og barnamálaráðherra þar sem hún hafði náð að koma mörgum af baráttumálum flokksins og ríkisstjórnarinnar vel áleiðis. Guðmundur Ingi tekur því við góðu búi og nýtur þess sem Ásthildur Lóa hefur lagt grunninn að,“ segir í tilkynningunni.

„Það ríkir fullt traust til Ásthildar Lóu innan Flokks fólksins. Félaga hennar í þingflokknum hlakkar til að fá hana aftur til starfa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×