Byrjunarliðið var kynnt klukkutíma fyrir leik og vakti ekki góð viðbrögð. Arnar Gunnlaugsson gerði sex breytingar og var með tvo miðjumenn í varnarlínunni.
Ef færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðuna.
Hugmynd: Hafa varnarmenn í vörninni.
— Árni Torfason (@arnitorfa) March 23, 2025
Alltof margir leikmenn settir í þá stöðu að vera spila leik sem þeir einfaldlega eru ekki vanir og lita einfaldlega illa út.
— saevar petursson (@saevarp) March 23, 2025
Leikurinn fór samt vel af stað fyrir Ísland og Orri Steinn skoraði eftir aðeins eina mínútu.
Captain Orri er að elska Captain lífið!
— Óskar G Óskarsson (@Oskarsson07) March 23, 2025
Delulu góður striker!
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) March 23, 2025
My captain🫡🇮🇸 #fotboltinet https://t.co/PkoDbVGSph pic.twitter.com/AZ4cTv6dRV
Þetta er liðið hans Orra.
— Max Koala (@Maggihodd) March 23, 2025
Áður en fyrri hálfleik lauk var Ísland hins vegar lent undir og spilamennska liðsins hreif landann lítið.
Ef við værum ekki að spila við svona lélegt lið, þá værum við líklega búin að fá 2-3 mörk á okkur eftir 25 min
— Óskar G Óskarsson (@Oskarsson07) March 23, 2025
Arnar Gunnlaugs 🤮
— Stefán Arason (@stebbi85) March 23, 2025
Þetta er verra en ég bjóst við og ég hafði ekki miklar væntingar 🥲
Gunnlaugsson ball pic.twitter.com/Yu7po7FPt7
— Brynjar (@bbking_69) March 23, 2025
Fyrri hálfleikurinn í mynd. pic.twitter.com/b65uNQGjk2
— Albert Ingason. (@Snjalli) March 23, 2025
Eftir að hafa horft á um 120 mín af Íslandi spila gegn Kosovo. Miðað við spilamennskuna erum við C deildarlið og Kosovo B. Það sést langar leiðir að þeir eru betri en við í fótbolta.
— Höllin er úrelt (@Nyjahollstrax) March 23, 2025
Glæsilegt strákar! Meira svona 😍 Þetta ógnarsterka lið Kósovó er bara alltof gott!!
— Daníel Smári (@danielmagg77) March 23, 2025
Fyrri hálfleikur. 😓 https://t.co/bMXCHzQaQs
— Ingimar H. Finnsson (@ingimarh) March 23, 2025
Meira að segja menn í fjórða flokki og þeir sem fylgjast frekar með bardaga- en boltaíþróttum tóku eftir því hvað íslenska liðið var illa skipulagt.
Afhverju fær þetta illa skipulagða sprikl svona mikla arhygli?
— Halldór Halldórsson (@doridna) March 23, 2025
Ég er med miðvörð hérna úr fjórða flokki sem skilur ekki ákvarðanirnar sem eru teknar í vörninni!!!
— Halldór Halldórsson (@doridna) March 23, 2025
Fámenni í miðvarðarstöðunni vakti athygli.
Brynjar Ingi er ekki í þessum landsliðshóp🤣🤣🤣
— Björgvin Helgi Hannesson (@BjorgvinH) March 23, 2025
Hjörtur er að spila alla leiki með félagsliði og á bestu tímabilin sín á ferlinum í 3 manna vörn hjá Brøndby og Pisa. Ég er svosem ekki landsliðsþjálfarinn en það hljómar eins og leikmaður sem passar ágætlega inn í það sem hann er að reyna að gera. https://t.co/UiHD5nsYCV
— Pétur Axel Pétursson (@peturaxel) March 20, 2025
Ísland neyddist til að gera eina breytingu í fyrri hálfleik og gerði síðan tvær til viðbótar í hlénu, en ekki breytinguna sem Höfðinginn kallaði eftir.
Jóa Berg inn STRAX.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) March 23, 2025
Um þúsund Íslendingar horfðu upp á ósköpin, flestir í eldri kantinum.
Meðalaldurinn í stúkunni er 70 ár. Vona að KSÍ hafi fengið Guðna Ágústsson til að fara með gamanmál í hálfleik.#fotboltinet
— Yngvi Eysteinsson (@yngvieysteins) March 23, 2025
Í seinni hálfleik var ekki boðið upp á mikið betri spilamennsku en í þeim fyrri.
Þetta er svo lélegt, svo ógeðslega lélegt. Þessi frammistaða er til skammar #fotboltinet
— Egill (@Agila84) March 23, 2025
Fokking hell
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) March 23, 2025
Aron Einar Gunnarsson kom inn á seinni hálfleik og spilaði rúmar tuttugu mínútur áður en hann fékk að líta rautt spjald.
Aron Einar…. pic.twitter.com/7qpWl97Ssl
— Óðinn Líndal (@OdinnLindal5) March 23, 2025
Einmitt, Aron Einar er að fara að bjarga þessu 🥴
— Henrý (@henrythor) March 23, 2025
Rosalegt að Þór hafi bara fengið Aron Einar til sín á síðasta tímabili! Leikmaður á hans kalíber hefði alltaf komist í ÍBV eða eitt af liðunum sem voru í toppbaráttunni í Lengjudeidinni.
— Pétur Axel Pétursson (@peturaxel) March 23, 2025
Flottur Aron, akkúrat það sem við þurftum frá fyrirliðanum okkar #fotboltinet
— Egill (@Agila84) March 23, 2025
Framherjinn Vedat Muriqi fullkomnaði svo þrennu sína og gjörsigraði Ísland.
Þetta er búið að vera alveg óþægilega dapurt allt saman. Uppleggið í báðum leikjunum hjálpar nákvæmlega engum inni á vellinum.
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) March 23, 2025
Reka þennan gæja.. hver mætir í rifnum gallabuxum í landsleik nr 2? Hvað er hann að gera þarna?
— Birkir Hauksson (@birkirhaukss) March 23, 2025
Falleinkunn engar afsakanir fyrir þessu bulli! Þetta er ekki tilraunastarfsemi hvað ætlaru að setja Hákon markmann næst sem framherja? Leikmenn með allt niðrum sig líka! Aron er búin með landsliðinu! @gulaspjaldid
— Bomban (@BombaGunni) March 23, 2025
Afsláttardögum Höfðingjans í Vigtinni er lokið.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) March 23, 2025
Það kostar lágmark 50 milljónir að falla í C - Deild Þjóðadeildarinnar.
Drop fyrir hádegi á morgun.
Þessi landsleikjagluggi 👎👎👎
— Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson (@gummi_aa) March 23, 2025
Tveir hræðilega lélegir leikir gegn ekki betri andstæðingi en Kosóvó
Framfarirnar þurfa að vera snöggar og þær þurfa að vera mjög stórar því þetta er ekki boðlegt
Vonandi er þetta bara lágpunkturinn í þjálfaratíð Arnars 🙏 pic.twitter.com/9ipE7YnQER
Datt aldrei í hug að Arnar yrði lélegri en Arnar.
— KonniWaage (@konninn) March 23, 2025
Það er ekki hægt að skafa af því. Þessi landsleikjargluggi er algjör falleinkunn á nýja íslenska teymið.
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) March 23, 2025
Leikmönnum engin greiði gerður með upplegginu í þessum 2 leikjum.
Þetta er ekki besta deildin. Getur ekki tekið svona áhættur þér er refsað. En Arnar er fljótur að læra.
Þessi kampavínsfótbolti sem Arnar virðist ætla að reyna að innleiða mun enda með ósköpum.
— Jóhann Már Helgason (@Joimar) March 23, 2025
Vissulega þarf hann sinn tíma en landsliðsfótbolti er býsna miskunnarlaus.
Arnar þarf að endurhugsa þessi grunngildi og láta liðið spila á sínum styrkleikum.
Kosavó eru ekki svona góðir.
Einhverjir komu þjálfaranum þó til varnar.
Þetta er alveg ömurlegt en Arnar spilaði lika svona allskyns þvælu með Vikinga til að byrja með en aðlagaði sig svo og varð varnarsinnaðari og skipulagðari, spurning hvort hann hafi og fai tima i það þarna.
— Hrafnkell Freyr Àgústsson (@hrafnkellfreyr) March 23, 2025
Nokkrir leikmenn að eiga generational lélegan leik. Úff
— Hörður (@horduragustsson) March 23, 2025
Séffinn beið spenntur eftir að heyra hvað Kári Árnason hafði að segja eftir leik.
Hlakka til að sjá Þjóðaríþróttar-hornið frá Kára Árna eftir leik. Hvaða take tekur hann í dag?
— Arnar Daði Arnarsson (@arnardadi) March 23, 2025
Vill hann fá skotklukku?
Sleppa miðju?
Tvö mörk fyrir sirkus?#Handkastið
Nú þegar fall niður í C-deildina er óumflýjanlegt skulum við ylja okkur við þá staðreynd að við munum alltaf eiga góðar stundir saman í janúar á hverju ári - alltaf.
— Höllin er úrelt (@Nyjahollstrax) March 23, 2025
Ég hef gaman af þessu beefi milli handbolta og fótbolta. Meira svona takk.
— Katrín Atladóttir (@katrinat) March 23, 2025