Innlent

For­seta­hjónin á leið til Noregs

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Norsku konungshjónin og forsetahjón Íslands.
Norsku konungshjónin og forsetahjón Íslands. Forseti Íslands

Forsetahjónin auk tveggja ráðherra fara á morgun til Noregs í þriggja daga ríkisheimsók. Þar munu þau meðal annars heimsækja norska Stórþingið, háskóla og viðskiptaviðburð.

Heimsókn Höllu Tómasdóttur og Birnis Skúlasonar hefst í fyrramálið með móttökuathöfn við konungshöllina í miðborg Osló, höfuðborg Noregs. Opinber sendinefnd og viðskiptanefnd fjörutíu íslenskra fyrirtækja verður með í för ásamt fulltrúum úr norsku viðskiptalífi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fara einnig með.

Gestgjafarnir eru Haraldur V. konungur og Sonja drottning auk Hákoni krónprins og Mette-Marit krónprinsessu. Eins og áður hefur verið fjallað um mun Ingiríður Alexandra prinsessa fara með sérstakt hlutverk í heimsókninni og það í fyrsta skipti. Hún kemur til með að taka við krúnunni af Hákoni föður sínum.

Að lokinni móttökuathöfninni verður farið í Akershusvirki þar sem forsetinn mun leggja blómkrans frá íslensku þjóðinni að minnismerki um Norðmenn sem féllu í síðari heimsstyrjöldinni. Þá mun Halla heimsækja norska Stórþingið og funda með Masud Gharahkani, forseta þingsins.

Halla og föruneyti hennar munu einnig heimsækja BI Norwegian Buisness School og ræða við nemendur, starfsfólk og aðra um ábyrga forystu. Íslenskir nemendur sem stunda nám í skólanum munu taka á móti forsetanum. Að degi loknum verður hátíðarkvöldverður í konungshöllinni.

Á miðvikudag heimsækja hjónin höfuðstöðvar Innovation Norway og Fontenehuset þar sem þau verða frædd um endurhæfingastarf fyrir fólk með geðraskanir. Auk þess eiga Halla og Þorgerður Katrín, fund með Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs. 

Um kvöldið býður Halla Haraldi konungi og Sonju drottningu til móttöku þar sem Ari Eldjárn fer með gamanmál, kokkalandslið Íslands ber fram veitingar og Benjamín Gísli Einarsson leikur á píanó.

Á þriðja degi fara Halla og Björn til Þrándheims með Hákoni krónprins og Tore O. Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs. Þar verður viðskiptaviðburður um bláa hagkerfið en þar mun Daði Már halda erindi. Sama dag heimsækja þau einnig Niðarósdómkirkju og þjálfunar- og endurhæfingarverkefni með Norðmenn bjóða fyrir úkraínska hermenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×