Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 91-105 | Grindavík hélt sér á lífi með langþráðum sigri utan heimabæjarins Hjörvar Ólafsson skrifar 28. apríl 2025 21:44 Grindavík er á lífi í einvíginu. Vísir/Anton Brink Grindavík minnkaði muninn í 2-1 í rimmu sinni við Stjörnuna í undanúrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta með 91-105 sigri sínum í þriðja leik liðanna í Umhyggjuhöllinni í Garðabænum í kvöld. Liðin skiptust á að leiða í fyrsta leikhluta og að honum loknum voru heimamenn fjórum stigum yfir, 21-25. Grindvíkingar, með Jeremy Pargo í broddi fylkingar, náðu síðan góðum kafla um miðjan annan leikhluta og gestirnir komust níu stigum yfir, 33-42. Skömmu síðar náði Stjarnan fimm stiga sókn hjá og minnkaði muninn í 43-44. Jóhann Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, fékk þá tæknivillu og Ægir Þór Steinarsson setti það víti ofan í. Hilmar Smári Henningsson nældi í þrjú víti og setti niður tvö af þeim. Shaquille Rombley hirti svo frákastið eftir þriðja vítið og setti boltann ofan í. Fyrri hálfleik lauk annars með látum en Deandre Kane setti þá upp alley oop sendingu á Arnór Tristan Helgason sem tróð með tilþrifum. Staðan 51-57 fyrir Grindavík í hálfleik. Arnór Tristan Helgason og Ægir Þór Steinarsson í baráttunni. Vísir/Anton Brink Shaquille Rombley fékk sína fjórðu villu í leiknum undir lok annars leikhluta og sat á varamannabekknum út háflleikinn. Seint í þriðja leikhluta var svo Rombley villaður út með fimmtu villu sinni og tók ekki meira þátt þetta kvöldið. Grindavík hélt forystunni í kringum 10 stig í þriðja leikhluta en um miðjan leikhlutann setti Kristófer Breki Gylfason niður þrista úr sitt hvoru horninu og kom gestunum 13 stigum yfir 61-74. Ólafur Ólafsson var að spila vel á báðum endum vallarins á þessum kafla í leiknum. Undir lok þriðja leikhluta setti Ólafur niður þriggja stiga skot sem kom Grindavík 16 stigum yfir, 66-82, og staðan vænleg fyrir Grindavíkurliðið. Kristófer Breki setti niður fjögur þriggja stiga skot í leiknum. Vísir/Anton Brink Stjörnumenn náðu mest að brúa bilið niður í átta stig, 88-96, í fjórða leikhluta en lengra komust heimamenn ekki. Að lokum fóru Grindvíkingar með sannfærandi 14 stiga sigur af hólmi og strengja líflíinu í einvíginu. Fyrir utan það að halda lífi í viðureigninni voru Grindvíkingar að kveða niður rúmlega sjö ára gamla grýlu í leikjum þessara liða utan Grindavíkurbæjarins. Síðasti sigur Grindvíkinga á Stjörnunni í leik utan Grindavíkur kom í hús 15. febrúar 2018 eða fyrir 86 mánuðum. Fyrir þennan leik hafði Stjarnan haft betur í 20 leikjum í röð á móti Grindavík þar sem var spilað utan Grindavíkur. Jóhann Ólafsson fer yfir málum með leikmönnum sínum. Vísir/Anton Brink Jóhann: Sýndum hversu gott sóknarlið við erum „Við vorum góðir á báðum endum vallarins. Skutum vel og pössuðum miklu betur upp á hann en í síðasta leik. Við náðum að stýra tempóinu betur og hafa leikinn eins og okkar hentar vel lengur en í fyrstu tveimru leikjum seríunnar,“ sagði Jóhann sáttur. „Við erum með gott sóknarlið og við fengum orku og góðar frammistöður frá Arnóri og Braga sem skiptu miklu máli. Ólafur er svo að komast í sitt fyrra form og hann hefur spilað vel í úrslitakeppninni frá því að hann átti slæman dag í fyrsta leiknum á móti Val,“ sagði hann um bróður sinn. „Við náðum að standast áhlaup þeirra í fjórða leikhluta. Þeir vilja sprengja leikinn upp og keyra upp hraðann. Þeir reyna að ýta og berja frá sér og við bara settum kassann út og tókumst vel á við það,“ sagði Jóhann hreykinn. Jeremy Pergo fór meiddur af velli undir lok leiksins eftir að hafa meiðst aftan í læri. Jóhann vonaðist eðlilega til þess að meiðslin væru ekki alvarleg: „Ég talaði við sjúkraþjálfarann eftir leik og hann sagðist telj að þetta væri ekki alvarlegt. Við verðum bara að vona það besta og Pargo verði mættur á parketið í Smárnum á fimmtudaginn,“ sagði Jóhann. „Mig langar að hrósa bæði leikmönnum og stuðningsmönnum okkar fyrir að mæta vel stemmd til leiks í kvöld. Leikmenn sýndu hugrekki og góða frammistöðu og við fengum frábæran stuðning. Það er ekki sjálfgefið eftir tvo tapleiki og stuðningurinn ýtti okkur yfir línuna,“ sagði hann. Baldur Þór: Náðum ekki upp ákafa í varnarleikinn „Þeir áttu of auðvelt með að skora og við náðum ekki að hægja nógu mikið á sóknarleiknum þeirra. Þeir fengu framlag frá mörgum leikmönnum og á sama tíma náðum við ekki upp flæði í okkar sóknarleik,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar aðspurður um hvað hefði vantað upp á. „Við náðum ekki að framkvæma sóknarleikinn nógu vel. Það var svo sem orka í okkar og menn vildu þetta alveg. Það vantaði ekkert upp á það að menn lögðu sig fram. Við náðum bara ekki að klára okkar sóknaraðgerðir nógu vel,“ sagði Baldur Þór þar að auki. „Þeir settu svo niður stór skot undir lok leiksins og því fór sem fór. Við reyndum að keyra upp leikinn þegar staðan var orðin svört en það dugði ekki til,“ sagði hann. „Svona er þetta bara og við þurfum bara að skilja við þennan leik og fara að huga að þeim næsta. Þetta verða allt hörkuleikir milli tveggja góðra liða,“ sagði þjáfarinn um framhaldið. Baldur Þór Ragnarsson gefur sínum mönnum leiðbeiningar. Vísir/Anton Brink Atvik leiksins Kristófer Breki setti niður þrjá þrista á mikilvægum augnablikum í leiknun. Ólafur Ólafsson setti einnig niður stór skot og spilaði góða vörn þegar á þurfti að halda. Annars var atvik leiksins raunar utan vallar þegar slagsmál brutust út á meðal áhorfenda. Stjörnur og skúrkar Ólafur Ólafsson tók liðið á herðar sínar þegar mest á reyndi en hann skoraði 25 stig í leiknumog var stigahæstur Grindvíkinga. Jeremy Pargo skoraði 19 stig og Deandre Kane 18 stig. Hilmar Smári og Ægir Þór voru fremstir á meðal jafningja hjá Stjörnunni en Hilmar Smári var atkvæðamestur á vellinum með 27 stig og Ægir Þór bætti 22 stigum við í sarpinn. Dómarar leiksins Spennustigið var hátt í þessum leik og margar erfiðar ákvaðanir að taka fyrir dómaratríóið. Jóhannes Páll Friðriksson, Gunnlaugur Briem og Davíð Kristján Hreiðarsson leystu það verkefni bara nokkuð vel og fá sjö í einkunn fyrir sín störf. Stemming og umgjörð Það var troðfullt hús í Umhyggjuhöllinni í kvöld en færra komust að en vildu á þessa körfuboltaveislu. Stuðningsmenn beggja liða voru í góðum gír framan af leik. Það var sungið, það var trallað og hitinn í húsinu var alveg eins og hann á að vera á þessum tímapunkti í úrslitakeppninni. Fiskikóngurinn sá um að trylla lýðinn með því að þeyta skífur og allir léttir þar til það kárnaði aðeins gamanið. Það slettist aftur á móti upp á vinskapinn undir lok leiksins og slagsmál brutust út sem gæslumenn eiga lof skilið fyrir að leysa farsællega úr. Það sauð upp úr undir loks leiksins. Vísir/Anton Brink Körfubolti Bónus-deild karla Stjarnan UMF Grindavík
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 91-105 | Grindavík hélt sér á lífi með langþráðum sigri utan heimabæjarins Körfubolti
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 91-105 | Grindavík hélt sér á lífi með langþráðum sigri utan heimabæjarins
Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 91-105 | Grindavík hélt sér á lífi með langþráðum sigri utan heimabæjarins Körfubolti
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-1 | Jafntefli sanngjarnt þegar hvorugt lið sækir til sigurs Íslenski boltinn