Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Árni Sæberg skrifar 9. október 2026 16:37 Þórarinn Hjartarson, Snærós Sindradóttir, Ólöf Skaftadóttir og Börkur Gunnarsson. Vísir Fimmtán hafa sótt um starf framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar og einn dregið umsókn sína til baka. Meðal umsækjenda eru fjórir hlaðvarpsstjórnendur sem bölsótast hafa opinberlega út í nefndina og kröfur hennar um skráningu hlaðvarpa sem fjölmiðla. Ætla má að umsóknir þeirra séu lagðar fram í hálfkæringi.
Elfa Ýr Gylfadóttir, sem setið hefur sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar frá stofnun hennar árið 2011, tilkynnti í ágúst að hún myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi skipun eftir lok núverandi skipunartíma hennar, sem rennur sitt skeið nú í haust. Því var starf framkvæmdastjórans auglýst og umsóknarfrestur rann út þann 4. október síðastliðinn. Vísir fór þess á leit við Einar Huga Bjarnason, formann Fjölmiðlanefndar, að fá lista umsækjenda afhentan. Hann er eftirfarandi: Birkir Karl Sigurðsson, sérfræðingur í viðskiptaþróun og annar þáttastjórnenda og stjórnarformaður Chess after dark Börkur Gunnarsson, verkefnastjóri Einar Karl Gunnarsson, viðskiptalögfræðingur Hrönn Indriðadóttir, fjölmiðla- og íslenskufræðingur Leifur Þorsteinsson, sérfræðingur [og hinn helmingur Chess after dark] Matthías Ólafsson, framkvæmdastjóri Ólafur Eyjólfsson, sviðsstjóri Ólöf Skaftadóttir, ráðgjafi, hlaðvarpsstjórnandi og fyrrverandi fjölmiðlamaður Páll Rafnar Þorsteinsson, sérfræðingur Salvör S. Jónsdóttir, viðskiptalögfræðingur Sigurður Sigurðsson, sérfræðingur Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Vera Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri og lögfræðingur Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd Þórarinn Hjartarson, hlaðvarpsstjórnandi Hlaðvarpsstjórnendurnir fjórir, Birkir Karl, Leifur, Ólöf og Þórarinn, hafa verið verulega gagnrýnin á störf Fjölmiðlanefndar undanfarin misseri og voru til að mynda meðal fjölda hlaðvarpsstjórnenda sem rituðu grein á Vísi í dag, þar sem þeir mótmæla því að Fjölmiðlanefnd krefji þá um skráningu sem fjölmiðlar. Á meðal umsækjenda eru einnig Börkur Gunnarsson, fjölmiðlamaður til fjölda ára og fyrrverandi rektor kvikmyndaskóla Íslands, Páll Rafnar Þorsteinsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar. Að sögn Einars Huga er stefnt að því að ráða í starfið fyrir 1. nóvember næstkomandi.
Fjölmiðlar Hlaðvörp Stjórnsýsla Vistaskipti Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Sjá meira