Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Smári Jökull Jónsson skrifar 11. október 2026 13:41 Leo páfi er 71 árs gamall og tók við sem páfi á síðsta ári. Vísir/AP Leó fjórtándi páfi hefur tilkynnt að hann þurfi að gangast undir aðgerð á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm eftir að hnútur fannst á lunga hans við læknisskoðun.
Leó páfi, sem er 71 árs gamall, sagði að læknateymi hans teldi rétt að grípa inn í og að hann hefði samþykkt að gangast undir aðgerðina. Fullvissaði hann pílagríma um að meinið væri vel afmarkað og hefði greinst á byrjunarstigi. Matteo Bruni, talsmaður skrifstofu Páfastóls, sagði í samtali við fjölmiðla að áætlað væri að páfinn gengist undir aðgerð á fyrstu dögum næstu viku og að það tæki hann um það bil viku að jafna sig. Aðgerðin verður framkvæmd á Gemelli-sjúkrahúsinu í Rómarborg en þar var einmitt komið upp sérstakri páfasvítu í kjölfar misheppnaðrar morðtilraunar á Jóhannesi Páli II í maí árið 1981 og er hún enn í notkun í dag. Í færslu á samfélagsmiðlinum X lýsti Giorgia Meloni yfir samstöðu sinni við páfann og „þeirri raun sem biði hans á næstu dögum“. Desidero rivolgere al Santo Padre la mia vicinanza personale e quella del Governo italiano per la prova che è chiamato ad affrontare nei prossimi giorni. La serenità e la tranquillità con cui ne ha parlato nell'Angelus di oggi ci rincuorano. Sono certa che anche il popolo italiano non farà mancare il proprio sostegno e il proprio affetto.— Giorgia Meloni (@GiorgiaMeloni) October 11, 2026 Leó páfi, sem áður hét Robert Francis Prevost, tók við af Frans páfa í maí á síðasta ári. Hann er fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem situr á páfastóli en hann var vígður til prests árið 1982 og starfaði árum saman sem trúboði í Perú. Í messu í dag staðfesti Leó að fyrirhuguð heimsókn hans til Úrúgvæ, Argentínu og Perú í nóvember yrði farin eins og til stóð.
Ítalía Leó fjórtándi páfi Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira