Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Smári Jökull Jónsson skrifar 11. október 2026 15:22 Tilkynning Trump um orkuvopnahlé Rússa og Úkraínu kom sjálfum Úkraínuforseta í opna skjöldu. Vísir/AP Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynning barst frá Donald Trump um að Bandaríkin og Úkraína hefðu samþykkt orkuvopnahlé í stríðinu. Hvorki stjórnvöld í Kænugarði né Moskvu hafa tjáð sig opinberlega um málið.
Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi þegar í stað. Tilkynning Trump á Truth Social. Í tilkynningu Trump segir að bæði ríki hafi fallist á að hætta árásum á orkuinnviði og lauk færslunni með orðunum „rjúfið þetta ekki!“. Trump hefur að undanförnu þrýst á Úkraínumenn að hætta árásum á rússneska olíuinnviði sem Kænugarður hefur sagt að sé lykilatriði til að draga úr tekjum Rússa til stríðsrekstursins. Trump tilkynnti á föstudag um samkomulag Bandaríkjanna og Rússa um útflutning olíu, samkomulag sem Selenskí gagnrýndi harðlega. Trump sagði í kjölfarið að Úkraína þyrfti nýjan forseta sem væri tilbúinn að semja um endalok stríðsins. „Við erum tilbúin og munum fallast á það“ Selenskí sagði fyrr í dag að hann væri reiðubúinn til að stöðva árásirnar ef Rússar hættu að ráðast á orkuinnviði í Úkraínu en þær árásir hafa færst í aukana síðustu vikur. Samkvæmt Barak Ravid, fréttamanni Axios, komu tíðindin um orkuvopnahlé Selenskí hins vegar í opna skjöldu. Er haft eftir Trump að ef Rússar samþykki vopnahlé á orkusviðinu þá muni Úkraína gera það líka. „Ef Trump forseti hefur samið um þetta við Pútín, vinsamlegast látið okkur vita þegar vopnahléið tekur gildi. Við erum tilbúin og munum fallast á það,“ á Selenskí að hafa sagt. Þá tjáði Selenskí sig á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sagðist hafa rætt við Mark Carney forseta Kanada, Alexander Stubb forseta Finnlands og Mark Rutte framkvæmdastjóra NATO um tilkynningu Trump og sagðist bíða þess að fá frekari fregnir frá Bandaríkjamönnum. I just spoke with @MarkJCarney, @alexstubb, and @SecGenNATO Mark Rutte. We discussed the energy ceasefire announced by President Trump. Ukraine supports the ceasefire, and it is important that Russia support it as well. We are awaiting details from the American side. For our part, Ukraine always FULLY supports steps toward de-escalation, the protection of lives, and the decisions needed to end the war and guarantee lasting peace. Thank you!— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 11, 2026 Tilkynning Trump kom í kjölfar þess að Selenskí sagðist í viðtali við ABC fréttastofuna vera reiðubúinn að boða til kosninga ef Pútín samþykkti sextíu daga vopnahlé. Voru ummælin svar við gagnrýni Trumps um að Úkraína þyrfti nýjan forseta. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Selenskí opnar á kosningar gegn vopnahléi en hann tjáði sig á svipaðan hátt í viðtali við Axios í febrúar. Þá er þetta ekki í fyrst sinn sem Trump tilkynnir um vopnahlé að öðrum aðilum samkomulags forspurðum.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir. 15. september 2026 10:13 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira
Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir. 15. september 2026 10:13